flugfréttir
Turkish bætir við sextán áfangastöðum í sumar
- Hefja flug til tíundu borgarinnar í Rússlandi
Frá Atatürk-flugvellinum í Istanbúl
Tyrkneska flugfélagið Turkish Airlines heldur áfram að bæta við áfangastöðum en til marks um mikil umsvif þá mun félagið hefja flug til 16 nýrra áfangastaða á næstu þremur mánuðum en átta af þeim eru borgir í Afríku en félagið er fjórða stærsta flugfélagið í heiminum þegar kemur að fjölda áfangastaða.
Áfangastaðirnir sextán eru:
Oran (Alsír) - 7. maí
Boston - 12. maí
Constantine (Alsír) - 15. maí
Varna (Búlgaría) - 21. maí
Catanía (Ítalía) - 23. maí
Asmara (Eritrea) - 29. maí
Montréal - 3. júní
Bordeaux - 12. júní
Münster/Osnabrück - 18. júní
Cotonou (Benín) - 23. júní
Pisa - 26. júní
Bamakó (Malí) - 30. júní
Conakry (Guinea) - 30. júní
Batna (Alsír) - 31. júlí
Tlemcen (Alsír) - 31. júlí
Tíundi áfangastaðurinn í Rússlandi bætist við
Turkish Airlines ýtti úr vör sínum tíunda áfangastað í Rússlandi með flugi frá Istanbul til Stavropol en borgin
er einnig áfangastaður númer 247 í leiðarkerfi tyrkneska flugfélagsins.
Hinar rússnesku borgirnar sem Turkish Airlines flýgur til eru Moskva (Vnukovo), Pétursborg, Novosibrisk, Yekaterinburg, Kazan,
Rostov-on-Don, Ufa, Sochi og Astrakhan.
Fyrsta alþjóða lúxus-biðstofa Turkish Airlines opnar í Moskvu
Þá opnaði Turkish Airlines sína fyrstu erlendu biðstofu á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu en setustofan, sem kallast Lounge Istanbul-Moscow, tekur
150 gesti, er 635 fermetrar á stærð og er opin allan sólarhringinn en næsta setustofa Turkish Airlines verður opnuð
á JFK-flugvellinum í New York.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.