flugfréttir
Ellefu hryðjuverkamenn yfirheyrðir í tengslum við hvarf vélarinnar
- Malasísk yfirvöld segja handtökurnar ekki tengjast hvarfinu á nokkurn hátt

Malasíska farþegaþotan sem leitar hefur verið af síðan 8. mars
Yfirvöld í Malaysíu neita því yfirheyrslur hafi farið fram yfir ellefu aðilum sem tengjast sem tengjast hryðjuverkasamtökunum Al Qaeda vegna hvarfs malasísku farþegaþotunnar.
Fram hefur komið í fréttum að 11 aðilar, sem eru með tengls við hryðjuverkasamtökin, voru handteknir
í síðustu viku í Kuala Lumpur og yfirheyrðir í kjölfarið í gær en aðilarnir, sem eru á aldrinum frá 22 ára til 55 ára, eru
meðlimir í "nýjum hryðjuverkasamtökum".
Hryðjuverkahópurinn er sagður hafa verið yfirheyrðyr eftir að beiðni kom frá alþjóða rannsóknarhópnum, sem rannsakar hvarfið, og þ.á.m.
fór bandaríska alríkislögreglan FBI og breska leyniþjónustan M16, fram á yfirheyrslurnar.
Ónafngreindur meðlimur, sem starfar fyrir hryðjuverkaöryggisstofnun malasísku ríkisstjórnarinnar, sagði: "Möguleikinn á því að vélinni hafi verið rænt
er enn mjög ofarlega á listanum hjá okkur".
Hópurinn, sem hefur verið yfirheyrðyr, hefur lýst því yfir að hann hafi ekki komið nálægt hvarfi flugs MH370. Þrátt fyrir þessar upplýsingar þá
segir Khalid Abu Bakar, lögreglustjórinn í Kuala Lumpur: "Handtökurnar á þessum aðilum hafa ekkert að gera
með týndu flugvélina".
Uppljóstrari Al Qaeda greindi frá því í mars að tilræði hefði verið í undirbúningi í Malaysíu
Uppljóstrari kom fram í fjölmiðlum, nokkrum dögum eftir að malasíska farþegaþotan hvarf, með frásögn um að hópur Íslamista í Malaysíu hafi ætlað sér að skipuleggja rán
á farþegaþotu með hryðjuverkin í Bandaríkjunum árið 2001 sem fyrirmynd.
Uppljóstrarinn, Saajid Badat, sem er múslimi, fæddur í Bretlandi, hlaut 13 ára dóm árið 2005 fyrir sinn hlut í
skósprengjutilræði, ásamt Richard Colvin Reid, en þeir gerði tilraun til að sprengja upp vél American Airlines á leið frá Miami til
Parísar í desember árið 2001.
Saajid Badat hlaut 13 ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að skósprengjutilræðinu árið 2005 en hann sagði í mars að hann hefði verið látinn afhenda sambærilega skósprengju til hryðjuverkamanna sem ætluðu að ræna flugvél í Malaysíu
Badat, sem hefur haft tengsl við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda og er í felum í Bretlandi, greindi frá því skömmu eftir að vélin hvarf, í
myndbandsupptöku, að fjórir til fimm malasískir karlmenn hefðu verið að skipuleggja að taka yfir stjórn á farþegaþotu
með því að sprengja upp dyr flugstjórnarklefann með sprengjuefni sem þeir sögðust ætla að fela í skóm sínum - einn þeirra
var eitt sitt flugmaður.
Babad segir að honum hafi verið skipað að afhenda skósprengju til malasísku Íslamistanna þegar hann var í Afghanistan. "Ég held að það hafi
verið til að opna stjórnklefann", sagði Badat sem bendir á að sá sem stjórni þessu sé Khalid Sheikh Mohammed, einn af
arkitektunum bakvið árásina á Tvíburaturnana.
Samkvæmt frásögn Babad hafi Mohammed haldið utan um lista yfir hæstu byggingar í heimi og telur hann möguleika
á að Petronas-turnarnir í Kuala Lumpur hafi átt að vera eitt skotmarkið en þær byggingar eru eitt af einkennismerkjum
borgarinnar og væru þær hæstu byggingar heims frá árinu 1998 til ársins 2004.
Prófessor Anthony Glees, yfirmaður á þjóðaröryggis- og upplýsingarannsóknasviði hjá Buckingham-háskóla, sagði skömmu eftir að greint var frá þessu að
þessi frásögn útskýri ástæðuna hversvegna malasísk stjórnvöld höfðu verið svona rög við að segja sannleikann frá því að vélin hvarf.


5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.