flugfréttir

Ætla að endurrekja slóð vélarinnar

- Munu fara vandlega aftur yfir öll gögn úr gervihnetti og ratsjám

6. maí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 00:57

Á miðvikudag verða rædd næstu skrefin í leitinni en allt lítur út fyrir að leitað verður neðansjávar á enn stærra svæði

Rannsóknarhópurinn, sem rannsakar hvarf malasísku farþegaþotunnar, ætlar sér að skoða allt dæmið upp á nýtt og fara vandlega aftur yfir upplýsingarnar sem fengust m.a. úr gervihnöttum til að ganga úr skugga um að sú leit, sem staðið hefur í 2 mánuði, hafi farið fram á réttum stöðum.

Síðan að vélin hvarf þann 8. mars þá hafa 300 leitarflugferðir verið flognar sem telur yfir 3.000 flugtíma á samtals 4,6 milljón ferkílómetra svæði.

Stjórnvöld í Ástalíu, Malaysíu og Kína munu á miðvikudag hittast í Canberra, höfuðborg Ástralíu, til að ræða næstu skref í leitinni en á meðan einn hópur mun fara aftur yfir þær upplýsingar sem eru fyrir hendi þá mun annar hópur fara yfir hvaða upplýsingar vantar til að þokast nær markmiðinu.

Samgönguráðherra Ástralíu, Warren Truss, samgönguráðherra Malaysíu,
Hishammuddin Hussein og Angus Houston, yfirmaður leitarinnar í Canberra í gær.

Ákveðið hefur verið að mun viðameiri neðansjávarleit sé það sem koma skal og verða m.a. einkafyrirtæki og verktakar ráðnir í að kortleggja hafsbotninn á mun stærra svæði en gert var með sjálfvirka kafbátnum Bluefin-21 og verður einnig leitast eftir því að nota tækjabúnað sem getur kafað á enn meira dýpi.

Einnig verður notast við búnað sem getur sent frá sér upplýsingar og niðurstöður upp á yfirborðið í rauntíma en Bluefin-21 þurfti að koma upp á yfirborðið á 16 klukkutíma fresti til að hægt var að nálgast þær upplýsingar sem kafbáturinn hafði safnað saman.

Tveir mánuðir gætu liðið þar til öflugri neðansjávarleit hefst

Talið er að tveir mánuðir muni líða þar til hægt er að hefjast handa við að kortleggja hafsbotninn en á meðan verður haldið áfram að notast við Bluefin-21. Samt sem áður hafa þær aðgerðir verið settar á bið á meðan skipið Ocean Shield er á leið í land til að sækja vistir í Ástralíu.

Rannsóknaraðilar hafa þurft að horfast í augu við þá staðreynd að mikill skortur hefur verið á haldbærum vísbendingum og sönnunargögnum. Þrátt fyrir að vonir vöknuðu á sínum tíma, er upplýsingar frá gervitunglum og úr ratsjám náðu að varpa ljósi á hvarfið, þá hafa engar nýjar upplýsingar komið upp á yfirborðið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga