flugfréttir
Telur að malasísku vélinni hafi verið flogið í átt að sólarupprás
- Af hverju fór neyðarsendirinn (ELT) ekki í gang ef hún brotlenti á sjó?

Fyrrverandi flugstjóri Malaysia Airlines telur mjög sennilegt að þeir sem hafa flogið vélinni hafi flogið í átt að dagrenningu
71 dagur er í dag síðan að malasíska farþegaþotan hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en enn eru getgátur uppi um hið dularfulla hvarf.
Samkvæmt fréttamiðlunum The Star Online hefur verið fjallað um hversvegna neyðarsendir ("Emergency Locator Transmitter") vélarinnar
fór ekki í gang ef vélin á að hafa farist í sjóinn í Suður-Indlandshafi en slíkir sendar eiga virkjast sjálfkrafa
ef þeir komast í snertingu við vatn.
Fyrrverandi flugmaður, sem áður flaug fyrir Malaysia Airlines, sagði að þrátt fyrir að undarlegt sé að neyðarsendirinn
hafi ekki farið í gang að þá verði að taka það með inn í reikninginn að mjög miklu máli skiptir hvernig flugvél ferst og hver
stefna hennar er og hversu mikið er höggið til að ELT fari í gang.
"Hvernig og hversu öflugt höggið er skiptir máli því þessi búnaður er gerður til að fara ekki í gang ef um harkalega
lendingu er að ræða því annars myndu vélar senda falskt neyðarkall", segir Nik Ahmad Huzlan.

Nik Ahmad Huzlan var flugstjóri hjá Malaysia Airlines og þekkti Zahaire
flugstjóra malasíku vélarinnar
Neyðarsendir Air France vélarinnar fór ekki í gang árið 2009
Þess má geta að neyðarsendirinn fór ekki í gang er Airbus A330 vél Air France fórst yfir Atlantshafinu árið 2009. Huzlan
segir að þar sem vélin var ekki á miklum hraða er hún skall í sjóinn að þá hafi ELT ekki metið höggið sem það öflugt og því
ekki skilgreint að um flugslys var að ræða en talið er að Air France vélin hafi fallið til jarðar á 100 kílómetra hraða á klukkustund.
"Þótt að Air France vélin fórst í sjóinn þá kom aldrei neyðarkall frá sendinum, vélin sökk og engin boð bárust frá ELT. Hinsvegar var það
ACARS-búnaðurinn á Air France vélinni ("Aircraft Communications Addressing and Reporting System") sem sendi
frá sér boð með upplýsingum um margskonar bilanir og villur eftir að vélin fórst en slökkt hafði verið á þeim búnaði
í malasísku flugvélinni.

Neyðarsendir malasísku vélarinnar fór (Emergency Locator Transmitter)
sendi aldrei frá sér boð en hann á að virkjast við
mikið högg og við brotlendingu á vatni
Huzlan segir að neyðarsendirinn (ELT) tengist hinsvegar ekki ACARS-búnaðinum þar sem hann virkar sjálfstætt og gengur
fyrir rafhlöðum sem endast í 48 klukkustundir eftir að hann fer í gang en búnaðurinn sendir mun öflugri merki frá sér
en þau hljóðmerki sem koma frá svörtu kössunum.
ELT sendir frá sér neyðarmerki á þremur mismunandi tíðnum sem aðrar flugvélar og einnig skip ná að greina en einnig
fara boðin til gervitungls sem kemur neyðarkallinu til fjarskiptastöðva, björgunarsveita og yfirvalda sem geta þá hafið leit
að vélinni.
"Fyrst er það 243 MHz tíðnin sem skipin nota sem ná að greina neyðarkallið um borð séu þau í grendinni og svo
er það 121.5 MHz sem er sú tíðni sem flugvélar styðjast við. Einnig er neyðarkallið sent út á 406 MHz sem eru gervitunglin.
"Lengst sem flugvél getur flotið á vatni eru 5 mínútur"
Hazlan segir að mjög miklar líkur séu á því að flak malasísku farþegaþotunnar gæti verið tiltölulega heilt á hafsbotni
ef vélin hefur farist þar eins og talið er.
"Við verðum að átta okkur á því að Boeing 777 er stór vél. Vélin myndi hafa fyllst af vatni sem hefur farið um öll hólf vélarinnar og gleymum því ekki að hreyflarnir eru mjög þungir þannig að vélin er ekki að fara neitt á þeim stað þar sem hún er - það lengsta
sem svona vél gæti haldist á floti er mesta lagi í 5 mínútur".
Nik Ahmad Huzlan segir að ef á að endurreikna upplýsingarnar frá gervitungli þá skuli taka með í reikninginn
að hver sá sem flaug vélinni, hafi hann ætlar sér að gera brotlendinguna eins velheppnaða og hægt er, þá hljóti sá hinn sami að hafa tekið stefnuna í átt að dagrenningu eða sem væri þá í austurátt.
Telur að vélinni hafi verið flogið til austurs á móti sólarupprás
Þegar vélin hvarf af radar yfir Taílandsflóanum milli Malaysíu og Víetnam var vélin að hefja langt flug inn í nóttina en ef henni var flogið
af leið vestur inn á Malacca-sundið og þaðan til suðurs við nyrsta odda Súmötru, og þaðan flogið í nokkrar klukkustundir
suður eftir Indlandshafi, þá þýðir það að undir það síðasta hafi verið farið að birta af degi til austurs.

Sólarupprás séð úr stjórnklefa á Boeing 777 vél Austral Airlines
"Ég er að horfa í nokkur atriði varðandi staðsetningu vélarinnar. Í fyrsta lagi er það hversu langt vélin gat flogið m.a.v.
það magn að eldsneyti sem var um borð og í öðru lagi er það sólarupprásin því hver sem flaug vélinni þegar fór að birta þá myndi hann sennilega fljúga á móti sól eða birtingu", segir Huzlan.
"Þannig að þar sem birta af sólarupprásinni skar þá slóð, sem var reiknuð út frá þeim fjórum hljóðmerkjum sem greindust
úr sjónum, sem talin eru hafa komið frá svörtu kössunum, þar er flak vélarinnar að finna".
"Af hverju að fljúga í áttina á móti sólarupprásinni? - jú þá er yfirborð sjávar sýnilegt og auðveldara að lenda á sjó þegar
þú sér yfirborðið".
Stundaði flugnám með Zahaire flugstjóra MH370
Nik Ahmad Huzlan, sem er 55 ára, þekkti flugstjóra malasísku farþegaþotunnar, Zahaire Ahmad Shah, en þeir
lærðu flugið saman árið 1979. Huzlan segir að Zahaire hafi verið mjög góður maður, afbragðs flugmaður og mikil
félagsvera sem hafði gaman að öllu sem tengdist flugi.
Huzlan sér ekki að flugstjórinn né aðstoðarflugmaðurinn hafi haft neina ástæðu til að bera ábyrgð á hvarfi
vélarinnar "Zahaire er á toppi ferilsins, hann á peninga, hann lifir góðu lífi og hefur enga ástæðu til að gera svona - Aðstoðarflugmaðurinn er
að hefja feril sinn og eftir 3 - 4 ár verður hann gerður að flugstjóra".
"Þeir hafa sennilega verið með 800 þúsund til 1,1 milljón í laun. Það er mjög góður peningur, getur keypt flott hús, átt nokkra
bíla og haft skemmtileg áhugamál".
Huzlan segir að Malaysia Airlines sé mjög öruggt flugfélag og að Boeing 777 vélin sé ein sú öruggasta í heimi - "Konan mín er yfirflugfreyja
hjá Malaysia Airlines og hvorki ég né hún óttumst að fljúga með félaginu - Hún er að fljúga í kvöld til Sádí-Arabíu og svo
aftur til baka - ég hætti í fluginu því ég byrjaði í fyrirtækjarekstri og gat ekki verið bæði að fljúga og að sinna
fyrirtækinu mínu - hún er enn í fluginu og ég myndi ekki leyfa henni það ef það væri eitthvað óöruggt að starfa
fyrir Malaysia Airlines".


17. janúar 2019
|
Flugakademía Keilis hefur fest kaup á Flugskóla Íslands en skólarnir eru þeir stærstu á landinu er kemur að flugkennslu og þjálfun nemenda í flugtengdum greinum.

3. desember 2018
|
Yuji Akasaka, forstjóri Japan Airlines, hefur ákveðið að lækka laun sín um 20 prósent næstu þrjá mánuðina í þeim tilgangi til að afsaka fyrir atvik er flugstjóri einn hjá félaginu var stöðvaður rétt

28. nóvember 2018
|
Tvö stór flugfélög á suðurhveli jarðar berjast nú í bökkum við að geta haldið rekstri sínum gangandi, annað flugfélagið í Suður-Ameríku og hitt í Afríku.

22. febrúar 2019
|
British Airways hefur ákveðið að Airbus A319 þota verði næsta flugvél félagsins til þess að verða máluð í gömlum litabúningi líkt og flugvélar félagsins litu út í gamla daga.

22. febrúar 2019
|
Norwegian á loksins von á því að geta fengið eina af Boeing 737 MAX þotunum í flotanum heim frá Íran en um er að ræða þotu sem hefur verið föst í landinu frá því að flugvélin hafði þar óvænta viðkomu

21. febrúar 2019
|
Aldrei hafa eins margir flugfarþegar farið um Heathrow-flugvöll í sögu flugvallarins líkt og árið 2018 þegar 80.1 milljón farþega fór um völlinn.

20. febrúar 2019
|
Flugfélagið airBatlic ætlar sér að hætta með Boeing 737 þoturnar fyrr en áætlað var.

20. febrúar 2019
|
Splunkunýrri Airbus A320 þotu sem var í afhendingarflugi frá Airbus í Hamborg á leið til Nýja-Sjálands var gert að snúa við yfir Tyrklandi þar sem í ljós kom að þotan hafði ekki leyfi til þess að flj

19. febrúar 2019
|
Flugmálayfirvöld í Íran hafa birt lokaskýrslu varðandi flugslys sem átti sér stað þann 18. febrúar í fyrra er farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 fórst í fjalllendi í innanlandsflugi í landinu.

19. febrúar 2019
|
Þrír þýskir bæjarstjórar í bæjunum Klixbüll, Leck og Niebüll vilja koma á flugsamgöngum til eyjunnar Sylt þar sem lestarsamgöngur hafa ekki gengið snuðrulaust fyrir sig að undanförnu.

19. febrúar 2019
|
Hafist hefur verið handa við að lagfæra og koma flugbrautinni á eyjunni Catalina við strendur Los Angeles í nothæft ástand á ný.