flugfréttir
MH370: Mjög umdeild gögn sem birt voru úr gervitunglinu í dag
- Segja að gögnin sanni að vélin hafi flogið til hins síðasta eldsneytisdropa

Margir gagnrýna gervihnattargögnin sem voru birt í dag og segja einnig að margar upplýsingar vanti
Malasísk stjórnvöld, í samráði við breska gervihnattarfyrirtækið Inmarsat, birtu í fyrsta sinn í dag opinberlega óunnar upplýsingar frá gervihnettinum Inmarsat-3.
Þær upplýsingar voru notaðar í útreikninga sem gerðir voru sem
sýndu fram á að malasíska farþegaþotan hafði flogið suður eftir Indlandshafi og farist vestur af ströndum Ástralíu.
Upplýsingarnar sem voru birtar í dag telja alls 47 blaðsíður en bæði fjölskyldur og aðstandendur þeirra sem voru um borð
í vélinni og flugsérfræðingar segja að gögnin gefi ekki upp neinar nýjar upplýsingar um hvarf vélarinnar og segja margir
að þær séu frekar ruglandi.
Stór hluti af gögnunum sína upplýsingar sem malasíska farþegaþotan gaf frá sér á meðan hún
var enn á jörðu niðri á flugvellinum í Kuala Lumpur og ekki enn farin í loftið í hið örlagaríka flug.
Í gögnunum koma m.a. fram upplýsingar um þau svokölluðu "handshake" sem áttu sér
stað er flugvélin og gervitunglið gáfu merki sín á milli sem staðfesti fjarsamband þeirra á milli. Þeir flugsérfræðingar, sem hafa lagst yfir gögnin
segja að undarlegt sé að eitt af þeim "handshake" sem átti sér stað kl. 23:41 vanti í gögnin sem voru birt.

Skjáskot af hlut þeirra gervitunglaganga sem voru birtar í dag
Einnig er sagt að gögnin tilgreini ekki stöðu gervitunglsins yfir jörðu og fjarlægðina frá flugvélinni hverju sinni en þær
upplýsingar eru mjög mikilvægar fyrir aðra sem ætla sér að spreyta sig á að reikna út leið vélarinnar.
Upplýsingar vantar í gögnin sem voru birt segja sérfræðingar
Tim Farrar, hjá fjarskiptafyrirtæki í Merlo Park í Kaliforníu, segir að þessar upplýsingar virðist renna stoðum undir
þá útreikninga sem hafa verið gerðir. Margar samsæriskenningar hafa komið fram þar sem meðal annars hefur verið
talið að malasísku farþegaþotunni hafi verið flogið til eyjunnar Diego Garcia en Farrar segir að þessar gervitunglaupplýsingar
felli þá kenningu ef upplýsingarnar reynist réttar.

Richard Quest, fréttamaður á CNN, hefur meðal annars rætt um
gervihnatarupplýsingarnar í fréttum vestanhafs
Fjarskiptasérfræðingurinn Mischa Dohler segir að það sé enn mörgum spurningum ósvarað og enn séu margar upplýsingar
sem ekki hafa verið birtar.
"Ég held að þessar upplýsingar muni ekki hjálpa neitt við að finna vélina. Það er mikilvægt að vélin finnst því annars vitum
við aldrei hvað gerðist", segir Dohler.
Dohler segir einnig að Inmarsat verði að birta öll reikniritin og myndrænar upplýsingar svo aðrir óháðir aðilar geti
reiknað út stöðu vélarinnar ef það var tilgangurinn með því að birta upplýsingarnar.
Aðstandendur gagnrýna birtingu gervitunglagagnanna
Aðstandendur og fjölskyldur sem áttu ættingja um borð gagnrýna birtingu á upplýsingunum og segja þær varpa engu
ljósi á hvað gerðist þann 8. apríl. Fjölskyldur fara einnig fram á að fá allar upplýsingar um Boeing 777 vélina svo
óháðir aðilar geti rýnt í þau gögn.
Wang Le, sem missti móður sína sem var um borð í vélinni, segist ekki geta séð hvaða tilgangi það á að þjóna að
gera þessar upplýsingar opinberar þar sem um er að ræða of tæknilegar upplýsingar fyrir venjulegt fólk að skilja.
Steve Wang, sem átti ættingja um borð í vélinni, segir að nú krefjist fjölskyldur og aðstandendur að fá allar upplýsingarnar
og líka þá útreikninga sem notaðir voru til að staðsetja farþegaþotuna og hvernig rannsóknarhópurinn fór að því
að rekja för vélarinnar suður í Indlandshafi.
Sarah Bajc, unnusta Philip Wood, sem hefur mikið verið í viðtölum í fjölmiðlum eftir hvarf vélarinnar, segir að hún sé
óánægð með að Inmarsat birti ekki allar upplýsingarnar ásamt þeirri aðferð sem var notuð sem sýndi fram á að vélin
fórst í Indlandshafi.

Það þarf sérkunnáttu til að átta sig á upplýsingunum úr Inmarsat-3
Telja að eldsneytisskortur hafi ollið "síðasta merkinu"
Í fréttum The New York Times segir hinsvegar að upplýsingarnar renni enn frekari stoðum undir þá kenningu að vélin hafi
farist í Suður-Indlandshafi og hafi hún flogið þar til eldsneyti vélarinnar var á þrotum.
Síðasta merkið ("handshake") sem kom frá vélinni kom ekki á venjulegum tíma eins og þau merki sem komu á klukkutíma
fresti og er talið að um hafi verið að ræða það augnablik sem eldsneytið var að klárast sem olli truflun í rafkerfi vélarinnar
sem sendi frá sér þetta síðasta merki til gervitunglsins ef marka má yfirlýsingu frá Samgönguöryggisnefnd Ástralíu.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.