flugfréttir
MH370: Telja að flak vélarinnar sé að finna við sjöunda hringbogann

Óháðir sérfræðingar hafa gert nýja útreikninga á því svæði hvar malasísku vélina er að finna
Rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu hefur birt upplýsingar með útreikningum sem óháðir sérfræðingar hafa unnið að þar sem fram kemur að malasísku farþegaþotuna sé að finna nálægt hinum svokallaða sjöunda hringboga sem er talin sennilegasta flugleið vélarinnar.
Sjöundi hringboginn var reiknaður út frá upplýsingum úr gervitunglinu Inmarsat sem tók á móti síðasta merkinu
sem flugvélin sendi frá sér sem er talið hafa verið það augnablik er eldsneytið var á þrotum.
Sérfræðingar segja að eftir útreikninga er talið að vélin hafi ekki náð að fljúga lengra en í 38 kílómetra fjarlægð
til vesturs frá þessum boga og ekki lengra en 55 kílómetra til austurs og á því svæði, meðfram boganum, sé flak vélarinnar
að finna.
Enn á eftir að gera frekari og enn nákvæmari útreikninga sem verða birtir um leið og þeir eru tiltækir til birtingar
en svæðið sem um er að ræða er það 60.000 ferkílómetra svæði sem einkafyrirtækjum verður falið að leita á en
áströlsk stjórnvöld hafa þegar gert samning við eitt fyrirtæki, sem sérhæfir sig m.a. í neðansjávarleit, um að kortleggja
hafsbotninn í næstu lotu leitarinnar sem hefst í ágúst.
Þess má geta að þann 16. júní verða komnir 100 dagar frá því að malasíska farþegaþotan hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking þann 8. mars í vor.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.