flugfréttir

Aldrei var leitað á heitasta svæðinu sem kom sterklegast til greina

- Skipið Ocean Shield fór ekki á það svæði sem sérfræðingar Inmarsat mæltu með

17. júní 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:30

Leitin einblíndist það mikið að hljóðmerkjunum sem greindust í sjónum að aldrei var leitað á svæðinu sem komst sterklegast til greina

Breska gervihnattarfyrirtækið Inmarsat segir að aldrei hafi verið leitað á þeim stað sem kom sterklegast til greina sem sá staður þar sem malasíska farþegaþotan gæti hafa farist þegar leitin af vélinni stóð sem hæst yfir í vor.

Inmarsat, sem tók á móti nokkrum merkjum frá malasísku flugvélinni gegnum gervihnött, eftir að hún hvarf af ratsjá, segir að þrátt fyrir alla þá leit sem gerð var hafi ekki enn verið leitað á "heitasta staðnum" sem er svæði sem sérfræðingar Inmarsat mæltu með og töldu að þar væri flak vélarinnar að finna.

Yfirmaður Inmarsat, sagði í nýlegu sjónvarpsviðtali á BBC að ástæðan fyrir því að ekki var leitað á þessu tiltekna svæði sé sennilega sú að ástralska skipið Ocean Shield, sem notaði leitarbúnaðinn Towed Pinger Locator og síðar sjálfvirka kafbátavélmennið Bluefin-21, hafi verið of upptekið við að eltast við hljóðmerkin fjögur sem greindust í sjónum.

Þau hljóðmerki greindust með Towed Pinger Locator búnaðinum þegar skipið var á leiðinni á leitarsvæðið og var talið að þar hafi verið á ferðinni hljóðbylgjur frá svörtu kössum vélarinnar en mörgum vikum síðar var talið að þau merki hafi eftir allt saman verið bylgjur frá skipinu sjálfu eða öðrum skipum sem voru við leit.

Frá höfuðstöðvum Inmarsat í London

"Þetta var alls ekki "heita svæðið" sem þeir voru að leita á allan tímann á - það lá miklu meira til norðaustur en það svæði sem við vorum búnir að mæla með sem líklegasti staðurinn þar sem flakið væri að finna", segir Chris Ashton, hjá Inmarsat.

Á klukkutíma fresti gaf búnaður malasísku vélarinnar frá sér merki til gervitungls nóttina sem vélin hvarf. Sérfræðingar notuðu þau merki til að reikna leið vélarinnar m.a. við farflugshraða, stefnu og var miðað við að vélin væri á sjálfstýringu en með því reiknuðu þeir út það svæði sem þeir töldu að kæmi sterklegast til greina.

Leitarskipið Ocean Shield fór aldrei á "heita svæðið"

Skipið Ocean Shield var ekki komið á þetta "heita svæði" þegar allt fór að snúast um hljóðmerki sem greindust í sjónum og fór skipið strax að athuga hvort að þessi merki væru að koma frá flugritunum.

Ástralska skipið Ocean Shield

"Við náðum að finna mjög trúlega flugleið sem kom heim og saman við hvert augnablik er vélin sendi frá sér merki til gervitunglins og það passaði við tímasetningarnar og við vorum búnir að njörva niður þann stað sem við töldum að vélin hefði endað flugferð sína, segir Ashton.

Hlé stendur nú yfir á leitinni fram í ágúst en þegar hún mun hefjast að nýju mun "heita svæðið" gegna lykilhluverki í leitinni og verður einblínt bæði á það og aðrar niðurstöður sem verið er að vinna úr.

"Annaðhvort Inmarsat eða malasíska ríkisstjórnin eru að ljúga"

Ethan Hunt, forsvarsmaður fyrir verkefninu "Reward MH370: The Search for the Truth", þar sem verið er að safna yfir 500 milljónum króna í verðlaunafé, segist vona að einhvern uppljóstrari "þarna úti" muni stíga fram og koma með góðar vísbendingar sem gæti leyst ráðgátuna.

Hunt segir að hvorki Inmarsat né hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hafi birt þau gögn opinberlega sem þeir hafa undir höndum sem notuð hafa verið í rannsókn við leitina að vélinni.

Fjölskyldufaðir spyr heiminn hvar konan hans er, 17 ára sonur sinn og 13 ára dóttir sín. Öll voru þau um borð í malasísku flugvélinni

Sarah Bajc, unnusta Peter Woods, sem var um borð í vélinni, segir að ef Inmarsat hefði ekkert að fela myndu þeir birta allar upplýsingarnar - "Ef það eru ekki þeir, þá er það malasíska ríkisstjórnin sem er að fela sannleikann - en malasísk stjórnvöld segja að búð er að birta öll gögn sem þeir fengu í hendurnar - Það er augljóst að annar hvort aðilinn er að ljúga", segir Bajc.

Ethan Hunt efast um þá viðamiklu leit sem fram hefur farið í Suður-Indlandshafi og mun hefjast að nýju í ágúst og segir hann að svo lengi sem öll gögn eru ekki birt þá er verið að eyða skattpeningum íbúa Ástralíu í rugl.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga