flugfréttir

MH370: Leitin mun færast miklu sunnar niður eftir Indlandshafi

- Yfirmaður Inmarsat: Það er ekkert "heitt svæði" sem kemur til greina

21. júní 2014

|

Frétt skrifuð kl. 05:35

Þrír og hálfur mánuður er síðan að malasíska farþegaþotan hvarf

Leitin að malasísku farþegaþotunni mun færast hundruði kílómetra sunnar niður eftir Suður-Indlandshafinu frá þeim stað þar sem upphaflega var leitað að vélinni þegar leitin hófst vestur af Ástralíu.

Þetta kom fram í gær og sagði Martin Dolan, yfirmaður rannsóknarnefndar flugslysa í Ástralíu, að nánar verður tilkynnt eftir helgi hvar leitin mun fara fram. - "Hversu sunnarlega leitarsvæðið mun færast til er eitthvað sem enn er verið að vinna að", sagði Dolan.

"Þetta nýja leitarsvæði verður samt sem áður í kringum sjöunda hringbogann í samræmi við þá flugstefnu sem talið er að vélin hafi flogið þegar hún gaf frá sér síðasta merkið til gervitungls", segir Dolan en talið er að vélin hafi gefið frá sér síðasta merkið þegar eldsneytið var á þrotum.

Ónafngreindur aðili innan samhæfingarmiðstöðvarinnar í Perth segir leitarsvæðið muni færast allt að 800 kílómetrum sunnar en áætlað er að leitin hefjist að nýju í ágúst.

Skipið Fugro Equator er þegar á þessum slóðum en áströlsk stjórnvöld gerðu fyrir 10 dögum síðan samning við rannsóknarfyrirtækið Fugro Survey Ltd. um að taka að sér það verkefni að kortleggja hafsbotninn á leitarsvæðinu.

Chris Ashton, sérfræðingur frá breska gervihnattarfyrirtækinu Inmarsat, sagði í sjónvarpsþættinum Horizon á BBC fyrr í vikunni að enn hafi ekki enn verið leitað á "heita svæðinu"sem er það svæði sem sérfræðingar Inmarsat mæltu með og töldu að þar væri flak vélarinnar að finna.

Ekki kom fram í tilkynningunni í gær hvort að leitarsvæðið sé að færast yfir á "heita svæðið" eða hvort um allt annað leitarsvæði sé að ræða.

Ekkert "heitt svæði" sem kemur meira til greina frekar en önnur svæði

Chris McLaughlin, yfirmaður Inmarsat, sagði skömmu fyrir helgi, að það væri ekki rétt að það væri eitthvað ákveðið "heitt svæði" sem kæmi frekar til greina og sagði hann að sérfræðingurinn Chris Ashton hefði ekki verið að fara með rétt mál í þættinum Horizon á BBC.

"Það er ekkert heitt svæði. Þetta er stórt svæði sem við höfum áætlað sem fylgir hringboga sem við höfum reiknað út frá mjög takmörkuðum gögnum sem við fengum úr gervitungli okkar. Leitarsvæðið verður mjög stórt og erfitt viðureignar", sagði McLaughlin.

McLaughlin benti á að Inmarsat hefði ekki getað reiknað út neina ákveðna staðsetningu þar sem talið er að flak vélarinnar væri að finna en hinsvegar hefðu þeir getað reiknað út áætlaða flugleið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga