flugfréttir

Fjórir mánuðir frá því að malasíska vélin hvarf

7. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:42

Fjórir mánuðir eru síðan að malasíska farþegaþotan hvarf

Fjórir mánuðir eru í dag síðan að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking og er hvarfið orðið það dularfyllsta sem vitað er um í farþegaflugi og er leitin að vélinni orðin sú dýrasta sem um getur.

Þrátt fyrir viðamikla leit sem farið hefur fram á gríðarlegu stóru svæði úr lofti, á sjó og neðansjávar með háþróuðum búnaði hefur ekkert flak fundist og aldrei hefur eitt einasta brak sést.

Malasískavélin var hálfnuð yfir Tælands-flóann þegar hún hvarf
aðfaranótt 8. mars

Heimsbyggðin, aðilar, fyrirtæki, flugfélög og samtök í fluginu, hafa spurt sig þeirra spurningar hvernig nútímafarþegaþota með 239 manns innanborðs geti horfið sportlaust og hvernig það geti staðist að ekki sé hægt að rekja og finna staðsetningu á slíkri vél þegar hægt er að staðsetja farsíma utan úr geimnum.

Leitin af vélinni og rannsóknin á hvarfinu hefur verið harðlega gagnrýnd þar sem mörgum finnst ýmislegt benda til þess að stjórnvöld hafi óhreint mjöl í pokahorninu sé tekið mið af þeim undarlegu atvikum sem skutu upp kollinum nánast daglega á fyrstu dögunum eftir að vélin hvarf.

Sérstaklega hafa stjórnvöld í Malaysíu verið gagnrýnd og hafa margir spurt sig hversvegna liðu 5 tímar frá því vélin hvarf og þar til formleg leit hófst að vélinni. Þá hefur það vakið furðu margra hversvegna leitin hefur eingöngu beinst að Suður-Indlandshafi þegar fleiri en einn sjónarvottur hefur komið fram sem telur sig hafa séð brennandi flak á himni sem hefur ekki vakið áhuga rannsóknaraðila.

Margar kenningar en fáar vísbendingar

Þá hafa fjölmargar samsæriskenningar skotið upp kollinum og getgátur um hvað gæti hafa gerst og hafa margir trú á því að vélinni hafi verið rænt af flugræningjum eða af stjórnvöldum og beindust augu margra að herstöðinni á eyjunni Diego Garcia og þá sérstaklega eftir að íbúar á Maldíví-eyjum töldu sig hafa séð stóra þotu fljúga í lágflugi yfir eyjarnar morguninn eftir að vélin hvarf.

Margir hafa talið að vélinni hafi verið rænt og flogið á herstöðina á eyjunni Diego Garcia

Einnig hafa verið kenningar á lofti um að vélin hafi verið skotin niður fyrir slysni af malasíska flughernum er hún flaug af leið til vesturs yfir malasíska lofthelgi og einnig er talið að hún hafi verið skotin óvart niður á heræfingu sem fram fór á svipuðum slóðum og vélin hvarf.

Marg dularfullt hefur komið fram á sjónarsviðið og hafa augun m.a. beinst að 20 sérfræðingum sem voru um borð í vélinni sem störfuðu fyrir fyrirtækið Freescale og er talið að í frakt vélarinnar hafi verið háþróaðar tölvuflögur sem "máttu" alls ekki fara til Kína.

Þótt að malasísk stjórnvöld birtu gögn með lista yfir farþega og yfir þann varning sem var um borð í vélinni þá hafa yfirvöld í landinu ekki viljað gefa upp dularfulla frakt sem vó 2 tonn sem var um borð en vitað er að fyrrverandi starfsmenn bandaríska sjóhersins höfðu sent vörur með vélinni en þeir fundust látnir skömmu áður í herskipi.

Áströlsk stjórnvöld birtu á dögunum 64 blaðsíðna skýrslu um hvarfið þar sem rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu telur að loftþrýstingur hafi sennilega fallið niður um borð sem hafi orðið til þess að flugmenn vélarinnar, áhöfn og farþegarnir urðu fyrir súrefnisskorti og vélin flogið stjórnlaus lengst suður í Indlandshaf uns eldsneytið varð á þrotum.

Einu áreiðanlegu vísbendingarnar sem unnið hefur verið eftir eru þau merki sem gervihnöttur breska fyrirtækisins Inmarsat tók á móti frá vélinni en eftir flókna útreikninga er talið að vélin hafi sent sex merki á klukkutíma fresti á leið sinni suður í Suður-Indlandshaf.

Fleiri skip verða send til leitar

Ástralska skipið Fugro Equator er núna á leitarsvæðinu þrátt fyrir að leit
hefst ekki aftur fyrr en í ágúst

Áströlsk stjórnvöld hafa sagt að leitin muni hefjast að nýju af fullum krafti í ágúst en ástralska skipið Fugro Equator er nú þegar á svæðinu og er skipið sérstaklega hannað til að standast þær erfiðu aðstæður sem eru á sjónum í Suður-Indlandshafinu, langt vestur af ströndum Ástralíu þar sem iðulega gengur á með háum öldum, stormum og rigningu.

Þá hefur Kína einnig sent skipið Zhu Kezhen en Angus Houston, yfirmaður samhæfingarmiðstöð leitarinnar, segir að það skip sé ekki eins vel búið fyrir þetta hafsvæði.

Áströlsk stjórnvöld hafa hætt að taka við tilboðum frá einkayfirtækjum sem sóttu um til að taka að sér 6,3 milljarða króna neðansjávarleit sem felur í sér kortlagningu á hafsbotninum með allt að þremur sjálfvirkum kafbátum en ekki hefur verið tilkynnt um hvaða fyrirtæki verður fyrir valinu til að taka það verkefni að sér sem gæti staðið yfir í meira en ár.

Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra Malaysíu, sagði sl. sunnudag að þrátt fyrir að yfir 120 dagar væru liðnir síðan að vélin hvarf að þá hafi malasísk stjórnvöld aldrei verið eins ákveðin í að finna vélina og einmitt nú og ætla yfirvöld að senda fleiri skip til leitar þegar aðgerðir hefjast að nýju í ágúst sem kölluð hefur verið "önnur lotan".

Malaysía ætlar bæði að senda herskip og einnig munu einkafyrirtæki senda skip á svæðið með sónarbúnað til að staðsetja flakið ef það liggur á hafsbotni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga