flugfréttir

MH17: Óhugnarlegar myndir birtar á samfélagsmiðlum af slysinu

17. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 17:45

Myndir af hluta af flaki vélarinnar sem rússnesk sjónvarpsstöð birti í dag

Mjög ósmekkleg myndbönd hafa verið birtar á samfélagsmiðlum á borð við Twitter og Youtube af flaki malasísku vélarinnar sem fórst á akri í dag í Úkraínu.

Meðal annars er myndband þar sem verið er að fletta í gegnum vegabréf þeirra sem voru um borð í vélinni þar sem m.a. sést andlit og nafna tveggja hollenskra barna sem voru um borð en alls voru 280 farþegar í vélinni og 15 áhafnarmeðlimir.

Einnig sýnir myndbandið flak vélarinnar þar sem eldar loga enn innan um brunnin lík en búkur vélarinnar er að mestu brunninn.

Alltumflug.is mun ekki birta myndbandið en hægt er að nálgast það á hér á Youtube. en við vörum við efninu.

Á Netinu hafa margir netverjar undrast tilganginn í því að birta slíkt óhugnarlegt efni en samkvæmt heimildum er sagt að um 80 börn hafi verið um borð en það hefur þó ekki enn fengist staðfest en rétt í þessu var greint frá því að svarti kassi vélarinnar hafi fundist.

Vélin var af gerðinni Boeing 777-200 sem er nánast sama tegund og malasíska vélin sem hvarf þann 8. mars í vor og frá sama flugfélagi nema sú vél var af gerðinni -200ER (Extended Range).

Flugmálastjórnin í Úkraínu sendi Malaysia Airlines skilaboð klukkan 14:15 í dag þar sem flugfélaginu var tilkynnt að Boeing 777 vél félagsins hefði horfið af ratsjá um 75 kílómetra norðvestur af borginni Donetsk kl. 13:43 að íslenskum tíma en flakið fannst við bæinn Shakhtarsk í um 80 kílómetra fjarlægð frá þeim stað þar sem vélin hvarf af ratsjá.



Samfélagsmiðlar á borð við Twitter loga af myndum af slysstað en meðal annars er búið að sýna myndband þar sem sjónarvottur myndar himininn þar sem hann bendir á að hann hafi séð flugvél hrapa til jarðar en skömmu síðar sést svartur reykur stígur til himna. Þá sást á sjónvarpsstöðinni Al Jazeera hvar salernispappír úr vélinni var enn að falla til jarðar.

Flugfélög á borð við Air France og Lufthansa hafa tilkynnt að þau muni forðast að fljúga gegnum úkraínska lofthelgi.

Vélin sem fórst í dag bar skráninguna 9M-MRD og var hún smíðuð árið 1997 og var hún afhent til Malaysia Airlines 29 júlí það árið en malasíska vélin sem hvarf þann 8. mars var 5 árum yngri en hún var afhent félaginu 31. maí árið 2002.







Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga