flugfréttir

Samtalið á íslensku og ensku: Aðskilnaðarsinnar komast að því að farþegaþota var skotin niður

17. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:44

Búið er að birta á Youtube rússneskt samtal, þýtt yfir á ensku, þar sem heyra má aðskilnaðarsinna tilkynna yfirmanni sínum, Igor Bezler, að malasísk farþegaþota hafi verið skotin niður en úkraínsk stjórnvöld birtu upptöku af símasamtalinu fyrr í dag.

Hér að neðan má sjá myndbandið með samtalinu en Igor Bezler, sem einnig er kallaður "The Demon", er yfirmaður rússneskra aðskilnaðarsinna í Úkraínu en einnig má lesa þýðingu á íslensku fyrir neðan myndbandið.

Myndband:



Hér er samtalið þýtt yfir á íslensku:

A   -   "Bara núna rétt áðan. Miner-hópurinn skaut niður flugvél. Hún féll niður í Yenakivo.
B   -   "Flugmennirnir, hvar eru flugmennirnir?"
A   -   "Okkar menn eru að fara núna að taka myndir af flakinu - Það er í mörgum pörtum"
B   -   "Hvað er langt síðan?"
A   -   "Um 30 mínútur"

Á þessum tímapunkti skiptist samtalið yfir í þegar þeir eru komnir að flakinu.

C   -   "Þeir skutu niður flugvél frá Chernukhino"
C   -   "Flugvélin brotnaði upp í miðju lofti nálægt Petropavlosk. Þeir fundu lík. Óbreyttir borgarar
C   -   "Þetta er alveg örugglega almennt flug
D   -   "Skil. Hvað var mikið að fólki?"
D   -   "Hvaða tegund er þetta?"
C   -   "Á eftir að komst að því. Er ekki komin að flakinu sjálfu. Er enn þar sem fyrstu líkin eru"
C   -   "Það er festingar af flugsætum, sæti og lík"
D   -   "Einhver vopn?"
C   -   "Nei, engin. Bara borgaralegt dót, lyf, handklæði og klósettpappír"
D   -   "Einhver gögn?"
C   -   "Já, indónesískir námsmenn. Frá Thompson-háskóla"

Á þessum tímapunkti kemur smá hlé og fleiri aðilar koma inn í samtölin

Mr. Kozitsyn   -   "Varðandi þessa flugvél sem var skotin niður nálægt Snezhnovo Torez. Það hefur komið í ljós að þetta var farþegaþota. Féll niður nálægt Grabovo. Það eru mörg lík, konur og börn. Kósakkarnir eru að skoða þetta.

Mr. Kozitsyn   -   "Í sjónvarpinu eru þeir að segja að þetta hafi verið úkraínsk An-26 herflugvél. En segja að hún sé merkt Malaysia Airlines.

Mr. Kozitsyn   -   "Hvað var hún að gera á úkraínsku svæði?"

Aðskilnaðarsinni?   -   "Kannski var hún að flytja njósnara. Hver veit. Ég meina það er stríð"







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga