flugfréttir
MH17: Forstjóri Emirates hvetur til neyðarfundar í fluginu
„Svona svívirðuleg árás á ekki að viðgangast“
Tim Clark, forstjóri Emirates
Emirates hefur hvatt flugfélög til að boða til allsherjarfundar í kjölfar hryðjuverkanna í Úkraínu eftir að Boeing 777 vél Malaysia Airlines var skotin þar niður sl. fimmtudag.
Tim Clark, forstjóri Emirates, sem er stærsta flugfélag í heimi er kemur að farþegafjölda, segir að öll flugfélög
í heiminum ætti að koma saman og ræða þá ógn sem komin er upp í heiminum og hvetur hann einnig
stjórnvöld og flugmálayfirvöld í einstaka löndum til að gera út skýrari reglur fyrir flugfélög varðandi hvar
er óhætt að fljúga.
"Alþjóðaflugfélög verða að standa saman sem ein heild og sýna á skýrann hátt að svona svívirðulegar
árásir á flugvélar eingöngu vegna hernaðardeilna og átaka, sem koma flugfélögunum ekkert
við, mun ekki viðgangast", segir Clark.
Tim Clark segir að hann hafi orðið "öskuillur" er hann heyrði að farþegaþota með 300 farþega hefði verið skotin niður og
segir hann að alþjóðasamfélagið, Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) og Sameinuðu Þjóðirnar ættu að taka hart á þessu.
Hluti af klæðningu af fyrsta farrými með afþreyingarskjá og handfarangursgeymsla
"Ef þú ferð austur eða vestur eða öfugt milli Evrópu og Asíu þá áttu hættu á að fljúga yfir svæði þar sem eru átök
og óeirðir. Okkur hefur hingað til tekist að sleppa við vandamál vegna þessa. Það hefur verið ráðist á Kabúl og Trípólí og
við höfum viðbúnað og verklagsreglur til að takast á við slíkar aðstæður þegar slíkt kemur upp - En það breyttist fyrir þremur
dögum síðan", segir Clark.
"Við stöndum frammi fyrir nýrri ógn og það veltur á ICAO, IATA og flugheiminum að komast að því
hvaða leikreglur standa til boða"
Aðspurður hvort að flugvélar ættu að vera útbúin flugskeytavarnarkerfi, þá svarar Clark: "Sumir hafa lagt fram
þá tillögu en það er lausn sem skilur engu. Ef við getum ekki flogið flugvélum frjálsum um heiminn án þess
að eiga á hættu að þær verði skotnar niður þá gætum við eins sleppt því að standa í þessum rekstri".
"Flugheimurinn vissi af hættunni vegna flugskeytaárása í lágri flughæð en allt kom fyrir ekki. Ekki í "villtustu draumum" átti
maður von á að einhverjum ætti eftir að takast að fremja eins mikið fjöldamorð og þarna var gert", segir Clark.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.