flugfréttir

MH17:Flugslysasérfræðingar eiga erfitt verk fyrir höndum

- Alþjóðarannsóknarhópurinn ekki enn komin á staðinn

21. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:17

Hollenskir sérfræðingar hafa einnar mínútna þögn við lestarvagnana þar sem búið er að koma líkum fyrir

Alþjóðlegur rannsóknarhópur á erfitt verk fyrir höndum er kemur að því að ferðast til þess svæðis í austurhluta Úkraínu þar sem Boeing 777 vél Malaysia Airlines var skotin niður sl. fimmtudag en framundan er að safna saman braki úr vélinni og rannsaka öll þau atriði þótt meginástæða þess að hún fórst liggi frekar ljóst fyrir.

Þá mun rannsóknarstarfið verða erfitt verk þar sem þegar er búið að hrófla við brakinu úr vélinni, færa það úr stað og taka brot og aðra hluti og nema á brott.

"Það er engin spurning að þetta svæði er enn undir stjórn rússneskra aðskilnaðarsinna og að þeir séu þarna ennþá er svipað og að láta glæpamenn stjórna aðgerðum á vettvangi glæps", segir Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu.

Samkvæmt fréttum komu hollenskir sérfræðingar á staðinn í dag og héldu þeir einnar mínútnar þögn við kælilestarvagnana í bænum Torez, þar sem líkunum hefur verið komið fyrir, í virðingarskyni við þá sem létust en hópurinn mun taka að sér að bera kennsl á líkin en helmingur farþeganna sem voru í vélinni voru Hollendingar.

Þá hóf breski flugslysarannsóknarhópurinn á vegum AAIB störf á svæðinu í dag en enn hafa alþjóðarannsóknaraðilar ekki enn komist á staðinn og er ekki vitað hvenær það verður þar sem svæðið er enn undir stjórn uppreisnarsinna og ríkisstjórn í Úkraínu hefur ekki tekist að tryggja öryggi á staðnum fyrir sérfræðinga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga