flugfréttir

Flug MH17 var fimmta Boeing 777 vélin sem hefur eyðilagst á 6 árum

- Fyrsta banaslysið um borð í Boeing 777 í fyrra

21. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 17:00

Malasíska farþegaþotan, sem var skotin niður yfir Úkraínu sl. fimmtudag, er fimmta Boeing 777 vélin sem hefur eyðilegst á sex árum samkvæmt vefsíðunni Aviation Safety Network en þar sem ekki er enn vitað um hið dullarfulla hvarf flugs MH370 þá er staðfest að fjórar slíkar vélar hafa lent í flugslysi eða skemmst með þeim afleiðingum að tjónið hefur verið það mikið að vélarnar voru afskrifaðar.

Boeing 777 vélin flaug sitt fyrsta flug þann 12. júní árið 1994 og var fyrsta áætlunarflugið flogið þann 7. júní árið 1995 og hafði þessi tegund að flugvél átt flekklausan feril í heil 13 ár eða þar til Boeing 777-200ER vél British Airways brotlenti í lendingu á Heathrow-flugvelli í janúar árið 2008 með þeim afleiðingum að 47 farþegar slösuðust en allir lifðu slysið af.

Enn í dag er Boeing 777 vélin talin ein öruggasta farþegaþota heims en í þeim tveimur tilvikum þar sem bilun var orsakavaldurinn með einum eða öðrum hætti, urðu engin dauðsföll, meðan flugslysið í San Fransisco var bæði vegna mannlegra mistaka og einnig var flóknum og misvítandi stillingarmöguleikum á sjálfstýringu kennt um að hluta til.

Í hinum tveimur tilvikunum, sem snýr að Malaysia Airlines, eru um að ræða mannskæðustu atvikin en þar kemur öryggi Boeing 777 vélarinnar ekkert við sögu, a.m.k. er kemur að flugi MH17 þar sem vélin var skotin niður en þar sem ekki er vitað hvað varð um flug MH370 þá er ekki hægt að staðfesta að bilun sé orsakavaldur.

Tímalína yfir þau slys sem hafa átt sér stað þar sem Boeing 777 vél hefur verið afskrifuð

Hér má sjá þau fimm slys og atvik þar sem Boeing 777 vél hefur eyðilaggst frá upphafi:

1.   -   British Airways - 17. janúar 2008 - London Heathrow - (Peking - London)

Boeing 777-200ER vél British Airways brotlendir í lendingu á Heathrow-flugvelli eftir flug frá Peking, um 300 metra fyrir framan brautarendann að 27L og rennur inn á brautina. Hjólastell eyðilagðist í brotlendingunni, vængfestingar við búk og hreyflar og var vélin afskrifuð.

47 slösuðust / Skráningarnúmer: G-YMMM





2.   -   EgyptAir - 29. júlí 2011 - Kaíró

Eldur kom upp í stjórnklefa á Boeing 777-200ER vél EgyptAir meðan vélin var kyrrstæða á flugvellinum í Kaíró. Vélin var rýmd og sakaði engann og náðu slökkviliðsmenn að slökkva eldinn. Vélin varð fyrir miklum skemmdum sökum elds og reyks og var afskrifuð. Rannsóknaraðilar töldu að galli í leiðslu í súrefnisgrímukerfi fyrir flugmennina hafi orsakað eldinn.

Engin meiðsl á fólki / Skráningarnúmer: SU-GBP





3.   -   Asiana Airlines - 6. júlí 2013 - San Francisco - (Seoul - San Francisco)

Boeing 777-200ER frá Asiana Airlines fórst í lendingu eftir að vélin lenti of snemma og fór með hjólastell í sjóvarnargarða. Farþegar og áhöfn náðu að forða sér úr vélinni áður en eldur varð henni að bráð en þrír létust í því slysi sem höfðu kastast út úr vélinni en talið er að ein kínversk stúlka hafi látist er slökkviliðsbíll ók yfir hana. Um var að ræða fyrsta mannskæða flugslysið í sögu Boeing 777 vélarinnar.

3 létust / Skráningarnúmer: HL7742





4.   -   Malaysia Airlines - 8. mars 2014 - (Kuala Lumpur - Peking) Boeing 777-200ER vél frá Malaysia Airlines hvarf af radar yfir Tælandsflóa á leið frá Kuala Lumpur til Peking. Þrátt fyrir viðamikla leit, sem hefur staðið yfir í 4 mánuði, hefur ekkert til vélarinar spurst.

239 um borð / Skráningarnúmer: 9M-MRO





5.   -   Malaysia Airlines - 17. júlí 2014 - (Amsterdam - Kuala Lumpur)

Boeing 777-200ER frá Malaysia Airlines er skotin niður yfir Donetsk-héraði í austurhluta Úkraínu.

298 létustu / Skráningarnúmer: 9M-MRD







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga