flugfréttir

Möguleiki að MH17 hafi flogið í fylgd orrustuþotna

21. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:38

Sukhoi Su-27 Flanker orrustuþota

Heimildir frá yfirvöldum herma að malasíska flugvélin, flug MH17, hafi verið í fylgd orrustuþotna er vélin flaug yfir Úkraínu en fram kemur að orrustuþoturnar, sem voru af gerðinni Sukhoi Su-27, hafi fylgt öllum farþegaþotum í gegnum lofthelgina á því svæði þar sem vélin var skotin niður frá því deginum áður.

Talið er að þeir sem skutu flugskeytinu að vélinni hefðu auðveldlega geta gert greinarmun á stórri farþegaþotu og annarri flugvél, hafi önnu vél verið skotmarkið hjá rússnesku aðskilnaðarsnnum.

Babak Taghvaee, varnarmálasérfræðingur í Íran, telur að mistökin hafi verið fólgin í því að láta orrustuþotur fylgja flugvélinni gegnum svæðið yfir austurhluta Úkraínu.

"Þegar óeirðirnar á Krímskaga braust út sendi úkraínski flugherinn sex vopnaðar Sukhoi Su-27 orrustuþotur fluttar til Kulbakino-herflugvallarins sem hafa verið á flugi yfir lofthelginni upp á síðkastið. Eftir að rússneskir aðskilnaðarsinnar hófu að skjóta niður úkraínskar flugvélar var orrustuþotunum fjölgað", segir Taghvaee.

"Eftir að aðskilnaðarsinnar náðu að skjóta niður Su-25M1 orrustuþotu úkraínska hersins þann 16. júlí ákvað úkraínski flugherinn að fylgja öllum farþegaþotum gegnum lofthelgina og þar á meðal malasísku vélinni".

"Því er mjög sennilegt að Buk-flugskeytið, sem var skotið, var annaðhvort ætlað orrustuþotunum eða að þeir hafi talið að orrustuþoturnar tvær hafi verið að fylgja mjög mikilvægri flugvél gegnum lofthelgina og því hafi þeir stillt skeytið á vélina án þess að gefa því frekari gaum", segir Taghvaee.

Þá hafa Rússar sagt að úkraínsku orrustuþoturnar hafi fylgt malasísku vélinni gegnum svæðið í þeim tilgangi að leyfa aðskilnaðarsinnum að skjóta vélina niður til að binda endi á stríðsástandið í austurhluta Úkraínu.

Robert Parry, fréttamaður AP-fréttastofunnar, segir að hann hafi heimildir frá aðila innan leyniþjónustunnar að Bandaríkin hafi undir höndum gervitunglamyndir sem gætu sannað að úkraínsku orrustuþoturnar hafi borið ábyrgð á því að flug MH17 var skotið niður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga