flugfréttir
MH17: Gervitunglamyndir sýna yfir hversu stórt svæði brakið dreifðist
Brak vélarinnar dreifðist yfir 5,2 ferkílómetra svæði
Birtar hafa verið nýjar gervitunglamyndir sem sýna flak malasísku flugvélarinnar nálægt bænum Grabovo í Donetsk-héraði í Úkraínu en myndirnar voru teknar af Airbus Defense and Space í gær.
Boeing 777 vélin, sem var skotin niður, fórst á akri en á fyrstu gervitunglamyndnni sést það svæði sem varð eldi
að bráð og í miðjunni má greinilega sjá flakið sjálft sem brann til kaldra kola.
Brak úr vélinni dreifðist hinsvegar yfir stórt svæði sem telur alls 5,2 ferkílómetra sem samsvarar flatarmáli Efra- og Neðra-Breiðholts auk Seljahverfis.
Brakinu rigndi úr vélinni til jarðar á mörgum stöðum langt frá flakinu sjálfu og þá lenti hluti af öðrum væng vélarinnar í um 100 metrum
sunnan við flakið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.