flugfréttir
Uppreisnarmenn afhenda svörtu kassana til sérfræðinga
- Segjast vera farnir og ekkert fyrir þá að aðhafast við flakið lengur
Alexander Borodai, leiðtogi uppreisnarmanna í sjálfskipaða lýðveldinu í Donetsk, afhendir malasískum sérfræðingum svarta kassann
Rússneskir aðskilnaðarsinnar hafa afhent svarta kassann úr malasísku flugvélinni sem var skotin niður í Úkraínu í síðustu viku.
Það var Alexander Borodai, leiðtogi uppreisnarmanna í sjálfskipaða lýðveldinu í Donetsk, sem afhenti
malasískum sérfræðingum kassana á blaðamannafundi á 11. hæð í byggingu þar sem uppreisnarmenn stjórna
borginni Donetsk í gærkvöldi.
"Við höfum ákveðið að afhenda flugritann úr vélinni til malasískra sérfræðinga", sagði Borodai en eftir það undirrituðu
malasísku séfræðingarnir sáttmála við rússnesku uppreisnarmennina áður en þeir tóku við svörtu kössunum.
Með hljóðritanum er möguleiki á að hægt verði að hlusta á samtal flugmannana áður en vélin var skotin niður auk þess
sem flugritinn mun gefa upp upplýsingar um hæð, stefnu, hraða og fleiri upplýsingar.
"Okkur hefur ekki tekist að finna enn svörtu kassana úr flugi MH370 sem hvarf yfir Indlandshafi þannig að við erum ánægðir að
fá þó þessa", sagð einn malasíski sérfræðingurinn er hann tók við flugritanum.
Vopnaðir aðskilnaðarsinnar hafa að mestu yfirgefið braksvæðið við vélina og sagði Borodai að alþjóðarannsóknaraðilar
ættu að geta haft greiðan aðgang að flaki vélarinnar þar sem vopnaðir hermenn eru á bak og burt en í gær
var enginn sem vaktaði svæðið.
Einn uppreisnarmaðurinn, sem var að keyra í burtu frá svæðinu í gær, sagði að það væri ekkert eftir til að standa vörð
um og sagði að hann gæti ekki betur séð enn að rannsóknaraðilum væri óhætt að koma og gera það sem þeim sýnist.
Alexander Borodai, leiðtogi aðskilnaðarsinna, hjálpar til við að setja flugritann í plastpoka
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.