flugfréttir

MH17: Brot úr flakinu bera ummerki eftir flugskeyti

22. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:25

Brot úr flaki vélarinnar með ummerkjum eftir flugskeytaárás

Brot úr flaki úr malasísku flugvélarinnar, sem var skotin niður í austurhluta Úkraínu í síðustu viku, þykir bera augljós ummerki um að vélin hafi verið skotin niður með flugskeyti.

Á brakinu segja sérfræðingar að greina má ummerki eftir sprengikraftinn sem varð er sprengioddur flugskeytsins hæfði vélina þar sem sjá má upphleypt mynstur í málningunni, dældir og holur sem eru í samræmi við þau ummerki sem myndast á flaki af flugvél sem hefur verið skotin niður.

"Götin sem sjást á þessu braki sýnir að vélin hafur orðið fyrir utanaðkomandi höggkrafti og einnig sjást holur eftir sprengjubrot sem bendir allt til að sprengioddur af flugskeyti lenti á vélinni", segir Reed Foster, sérfræðingur í viðtali við New York Times

Þá segir Foster að lengri og fínni rispur í málningunni á búk vélarinnar séu merki um sprengingu í hreyfli þar sem agnir, brak og flísar frá hreyflinum lenda á skrokknum þar sem vélin er á farflugshraða.

Talið er að vélin hafi verið skotin niður með SA-11 flugskeyti sem einnig er þekkt sem Buk-flugskeytakerfi en hvert flugskeyti er 5 metrar á lengd og vegur 700 kíló en sprengioddurinn sjálfur er 20 kíló og er hlaðinn sprengiefni á meðan restin af flugskeytinu inniheldur það eldsneyti sem til þarf en hvert skeyti getur drifið upp í 90.000 feta hæð en flug MH17 var í 33.000 fetum er hún var skotin niður.

SA-11 flugskeytakerfi (einnig þekkt sem Buk)







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga