flugfréttir

33 flugfélög fella niður flug til Ísrael

- EASA varar við flugi og FAA bannar flug til Tel Aviv í sólarhring

23. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 08:26

Flugvélar Delta Air Lines og British Airways á Ben Gurion-flugvellinum í Tel Aviv

Alls hafa 33 flugfélög lagt niður flug til Ísrael en vanalega fljúga 75 flugfélög til Ben Gurion-flugvallarins í Tel Aviv og hefur flugfélögunum því fækkað um helmingi eftir að flugmálayfirvöld bönnuðu flug til landsins í gær vegna hættu á eldflaugaárás.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) bönnuðu bandarískum flugfélögum að fljúga til Tel Aviv í a.m.k. sólarhing eftir að júmbó-þota frá Delta Air Lines, sem var á leið til Tel Aviv frá New York, snéri við til Parísar er vélin var yfir Grikklandi eftir eftir að eldflaug var skotið á byggingu nálægt Ben Gurion-flugvellinum.

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) gaf út viðvörun í gær þar sem evrópsk flugfélög voru sérstaklega hvött til þess að forðast flug til Tel Aviv vegna þeirra hættulegra aðstæðna sem hafa skapast eftir að Ísraelsmenn hófu eldflaugaárásum á Gaza-svæðið.

Flest evrópsk flugfélög hafa farið eftir tilmælunum en þó ekki öll. British Airways hefur t.a.m. ákveðið að halda áfram að fljúga til Ben Gurion-flugvallarins frá London Heathrow.

Hér er listi yfir þau 33 flugfélög sem hafa hætt að fljúga í bili til Ísrael

Aegean Airlines
airBaltic
Air Berlin
Air Canada
Air France
Air Serbia
Alitalia
Austrian Airlines
Brussels Airlines
Cyprus Airways
Delta Air Lines
easyJet
easyJet Switzerland
Germanwings
Jetairfly
KLM Royal Dutch Airlines
Korean Air
Lufthansa
Meridiana
Niki
Norwegian Air Shuttle
Pegasus Airlines
Royal Jordanian
SAS (Scandinavian Airlines)
Swiss International
TAROM
Transaero
TUIfly
Turkish Airlines
United Airlines
US Airways
Vueling
Wizz Air







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga