flugfréttir
200 lágfargjaldaflugvellir munu rísa á Indlandi
Ný flugstöð á Raja Bhoj-flugvellinum í Bhopal
Indversk stjórnvöld ætla að láta verða af því að hefja framkvæmdir á 200 flugvöllum á Indlandi sem eingöngu verða ætlaðir fyrir lágfargjaldarflug sem munu þjóna minni borgum þar sem íbúafjöldi er undir einni milljón.
Flugmálayfirvöld á Indlandi ætla að tengja þær borgir sem flokkast undir "Tier I" og "Tier II" þar sem
rannsókn hefur leitt í ljós að næg eftirspurn er eftir flugi frá almenningi í þessum borgum sem myndu nýta
sér flugsamgöngur ef það væri flugvöllur í þessum borgum sem biði upp á farþegaflug.
Fyrsta skrefið er að byrja á 50 lágfargjaldaflugvöllum og tengja borgir í héröðunum Juhu, Goa, Kannur, Pune, Sriperumbudur, Bellary og Raigarh en sagt
er að 70% af íbúum Indlands búi í borgum þar sem ekki er neinn flugvöllur.
Á Indlandi eru 125 flugvellir þar sem áætlunarflug fer um vellina og 400 flugbrautir sem bjóða ekki upp á reglubundið
farþegaflug sem stjórnvöld ætla sér að breyta í lágfargjaldaflugvelli.
Þá á að gera flugvellina í Bhopal, Indore og Raipur að alþjóðaflugvöllum sem mun auka framboð á flugi frá
öðrum löndum sem felur í sér lægri kostnað fyrir farþega sem þyrftu annars að fljúga til annarra borga og koma sér
á leiðarenda með öðrum hætti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.