flugfréttir

Svörtu kassarnir úr flugi MH17 komnir til Bretlands

- Geymdur í læstu herbergi þar sem upplýsingar verða teknar úr þeim

23. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:28

Rússneskir aðskilnaðarsinnar afhentu svörtu kassana til malasískra yfirvalda í vikunni

Staðfest hefur verið að svörtu kassarnir úr malasísku flugvélinni, sem var skotin niður í austurhluta Úkraínu, séu komnir til Bretlands þar sem breskir flugslysasérfræðingar á vegum rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi (AAIB) munu fara yfir gögnin úr þeim.

Sérfræðingarnir bresku ætla að ná gögnum úr flugritum og hljóðritum vélarinnar að ósk rannsóknarnefnd flugslysa í Hollandi sem leiðir rannsóknina en farið var með kassana úr vélinni til höfuðstöðva AAIB í Farnborough þar sem þeir eru geymdir í læstu herbergi en gögnin verða síðan send til Hollands.

Fyrir framan höfuðstöðvar rannsóknarnefndar flugslysa (AAIB)
í Farnborough í Bretlandi

Flugritinn inniheldur upplýsingar um flughæð, stefnu, farflugshraða og aðrar upplýsingar á meðan hljóðritinn hefur að geyma samtöl flugmannana auk þess sem mögulega má heyra önnur hljóð á borð við sprengingu.

Jonathan Sumberg, fréttaritari BBC, segir að AAIB hafi yfir að ráða þeim búnaði sem þarf til svo hægt sé að hlusta á upplýsingar úr hljóðritanum.

Talið er að hljóðupptakan úr hljóðritanum gæti haft takmarkaðar upplýsingar þar sem vélin hefur sennilega sprungið á augabragði og er mjög sennilegt að aðeins megi heyra samtal flugmannana og svo ekkert meira eftir að flugskeytið hæfði vélina.

"Flugritinn gæti hafa náð smá hluta af hljóðinu er vélin varð fyrir flugskeytinu", segir Tony Cable, fyrrum flugslysasérfræðingur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga