flugfréttir
47 látnir í flugslysi í Taíwan
- ATR 72-200 frá TransAsia ferst í borginni Mekung
Vélin var af gerðinni ATR 72-200 og létust 47 af þeim fimmtíu og fjórum sem voru um borð
Flugslys átti sér stað í Taíwan í dag er farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 frá TransAsia hrapaði í aðflugi að flugvellinum í borginni Makung á eyjunni Penghu meðan fellibylurinn Matmo gekk yfir eyjarnar.
47 manns létust en um borð voru 54 farþeegar og fjögurra manna áhöfn
og voru 11 sem slösuðust.
Vélin átti um einn kílómeter eftir óflogið inn á brautina og var hún í 300 feta hæð þegar hún missti hæð og hrapaði
ofan á byggingu í hverfinu Xixi.
Kortið sýnir flugleið vélarinnar frá Kaohsiung til Makung
Flugmálayfirvöld í Taíwan segja að vélin hafi hætt við lendingu skömmu áður sökum hvassviðris og úrkomu og farið í go-around en þegar vélin var að gera aðra tilraun til að lenda hvarf hún skyndilega af ratsjá.
Vélin fór í loftið frá flugvellinum í borginni Kaohsiung á suðurhluta eyju Taíwan kl. 17:43 að staðartíma en samband rofnaði við
vélina kl. 19:06 skömmu áður en hún fórst.
Búið var að aflýsa mörgum flugferðum vegna fellibylsins Matmo en nýbúið var að gefa grænt ljós á flug að nýju
þegar vélin fór í loftið.
ATR 72-200 vél TransAsia Airways
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.