flugfréttir
Myndband: Kíkt inn í flugturninn á Hartsfield-Jackson (ATL)
- Flugumferðarstjórarnar í Atlanta sinna 2.700 vélum á dag
Um 2.700 flugvélar fara um Hartsfield-Jackson flugvöllinn í Atlanta á dag
Að vera flugumferðarstjóri er ekki beint afslappaðasta starf sem til er þar sem einbeitingin þarf að vera mjög mikil og athyglin í lagi.
Hér er þriggja mínútna myndband þar sem við kynnumst aðeins starfseminni í flugturninum á stærsta flugvelli heims er kemur
að farþegafjölda - Hartsfield-Jackson flugvöllurinn í Atlanta.
Um 2.700 flugvélar fara um völlinn á hverjum degi en völlurinn hefur 5 flugbrautir sem liggja allar samsíða frá vestri til austurs (09/27).
Enginn flugturn í Norður-Ameríku er eins hár og nýi turninn á Hartsfield-Jackson-flugvellinum sem var tekinn í notkun árið
2006 en hann er 178 metrar á hæð.
Framkvæmdirnar kostuðu um 4,5 milljarða króna en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) settu út 500 milljónir
sem fóru í kaup á tækja- og fjarskiptabúnaði, möstrum og uppsetningu á aðstöðu flugumferðarstjóra.
"Þetta er ekki eins og í bíómyndunum þar sem þú mætir í vinnu, þeir tengja þig og þú byrjar að vinna. Það fer mikill
tími í að lesa úr kortunum og gera ýmsa útreikninga. Allt sem stendur á radarnum eru upplýsingar sem þýða eitthvað", segir
Mike Ryan, flugumferðarstjóri á flugvellinum í Atlanta.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.