flugfréttir
Ryanair gert að greiða til baka ólöglegan fjárstuðning
Boeing 737-800 vélar Ryanair
Írska lágfargjaldafélaginu Ryanair hefur verið gert að greiða til baka ólöglega fjárhagsaðstoð upp á eitt þúsund og 500 milljónir sem franska ríkið veitti félaginu til að geta haldið uppi áætlunarflugi til þriggja flugvalla í Frakklandi.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að um ólöglegan stuðning sé að ræða gagnvart öðrum flugfélögum
en Ryanair segist ætla að áfrýja þessari "óréttlátu" niðurstöðu.
Eftirlitsnefnd samskeppnisstofnun Evrópusambandsins segir að félagið hafi þegið aðstoð upp á 1 milljarð króna frá franska ríkinu
til að geta flogið til flugvallarins í Nimes og fyrir það þurfi Ryanair að greiða til baka auk 370 milljónir króna
sem félagið fékk fyrir að fljúga til Pau-flugvallarins og 134 milljónir fyrir flug til Angouleme.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að aðeins hefðu 3,4 milljónir farþega flogið til þessara flugvalla
með félaginu samanborið við 86,5 milljónir sem flugu til sjö annarra flugvalla í Frakklandi á sama tímabili en árangur
félagsins fellst í því að ná góðum kjörum á lendingargjöldum á litlum flugvöllum í Evrópu.
Evrópusambandið dæmdi einnig Transavia til að greiða til baka 61 milljón króna fyrir fjárhagsaðstoð í tengslum við
markaðssetningu á flugi til Pau-flugvallarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.