flugfréttir

Airbus A350 lögð af stað í flug kringum jörðina

- Flugprófunum lýkur með flugi til 14 flugvalla í heiminum

24. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:57

Fimmta A350 vélin (MSN5) mun koma við á 14 flugvöllum í heiminum

Lokaprófanir eru að hefjast á nýja Airbus A350 vélinni sem er síðasta stigið áður en vélin fór vottun frá flugmálayfirvöldum en alls hafa 5 eintök af A350-900 vélinni verið við flugprófanir síðan þær hófust í júní í fyrra.

Í lokatilraununum mun fimmta tilraunavélin, MSN5, fljúga kringum jörðina og koma við á 14 flugvöllum auk þess sem vélin mun einnig fljúga yfir Norðurpólinn.

Í þessum prófunum mun reyna á frammistöðu vélarinnar er kemur að flugrekstri þar sem m.a. verður prófað að afgreiða vélina á flugvöllum, koma farangri fyrir en í einhverjum tilvikanna verða farþegar um borð.

MSN5 er ein af þeim tveimur A350 tilraunavélum Airbus sem er með innréttuðu farþegarými og tekur hún 42 farþega í sæti á fyrsta farrými og 223 á almennu farrými.

Flugferðin um heiminn mun taka þrjár vikur og verður vélinni flogið í fjórum áföngum.

Fyrst flugferðin: - Toulouse - Iqaluit (Kanada) (yfir Norðurpólinn) - Frankfurt - Toulouse

Önnur flugferðin: - Toulouse - Hong Kong - Singapore - Hong Kong - Toulouse (nokkrum sinnum verður flogið á milli Hong Kong og Singapore)

Þriðja flugferðin: - Toulouse - Jóhannesarborg - Sydney - Auckland - Santiago de Chile - Sao Paulo - Toulouse

Fjórða flugferðin: - Toulouse - Doha - Perth - Doha - Moskva - Helsinki - Toulouse

A350 vélin, MSN5, sem ber skráninguna F-WWYB, er sérstaklega merkt með "Around the world" stöfum í tilefni af hnattfluginu.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga