flugfréttir

Vél Air Algerie flaug yfir átakasvæði sem búið var að vara við

- Norðurhluti Malí undir stjórn herskárra jihadista og al-Qaeda

25. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 07:17

Vél Air Algerie flaug yfir óeirðarsvæði og var búið að vara flugfélög við hættunni

Búið er að finna flakið af McDonnell Douglas MD-83 vél Air Algerie en herinn í Burkína Fasó kom auga á flakið skammt suðurvestur af bænum Gossi í Malí og var flakið ein brunarúst og hefur enn enginn fundist á lífi.

Vélin fannst 18 klukkustundum eftir að tilkynnt var um hvarf hennar í gær en hún var á leið frá Ouagadougou, höfuðborg Burkína Fasó, til Algeirsborgar í Alsír sem flug AH-5017, þegar hún hvarf af radar kl. 1:55 aðfaranótt fimmtudagsins.

Einnig hafa stjórnvöld í Malí einnig tilkynnt að búið sé að staðsetja flakið nálægt bænum Gossi.

Vélin var að fljúga yfir norðurhluta Malí sem er undir stjórn herskárra jihadista sem tengjast m.a. al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum en þeir hafa átt í átökum við herinn í landinu og hafa óeirðir geysað á því svæði þar sem vélin var að fljúga yfir er hún hvarf af radar.

Búið var að vara flugfélög við því að fljúga ekki yfir Malí vegna átaka en franski herinn hefur verið þar frá því í janúar að berja við íslamska uppreisnarmenn. Sérfræðingar hafa sagt að ósennilegt sé að vélin hafi verið skotin niður þar sem enginn her né uppreisnarhópur búi yfir langdrægum flugskeytum á þessu svæði.

Vélin var hinsvegar að fljúga inn í slæmt veður, rigning og lélegt skyggni og hvarf hún skömmu eftir að flugumferðarstjórar báðu vélina um að breyta stefnu sinni til að forðast aðra flugvél sem var í nágrenninu á leið frá Alsír til Bamako, höfuðborgar Malí.

110 farþegar voru um borð og þar af helmingurinn Frakkar auk tveggja flugmanna og fjögurra flugliða en öll áhöfnin var spænsk þar sem vélin hafði verið tekin á leigu frá spænska flugfélaginu Swiftair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga