flugfréttir
Fyrstu prófanir hefjast brátt á nýju Falcon 8X vélinni
Dassault Aviation hefur komið fyrir PW307D hreyflunum þremur á fyrsta eintakið af Falcon 8X vélinni
Franski flugvélaframleiðandinn Dassault Aviation mun brátt hefja prófanir á jörðu niðri með nýju Dassault Falcon 8X vélina en búið er að koma fyrir þremur PW307D hreyflum frá Pratt & Whitney auk þess sem vængirnir hafa verið festir á búkinn.
Núna í enda mánaðarins verður rafmagni hleypt á vélina og munu prófanir hefjast þá en Dassault stefnir á að fljúga
vélinni fyrsta flugið snemma á næsta ári og er áætlað að hún fái vottun árið 2016 áður en afhendingar hefjast
fyrir árslok 2016.
Fyrsti búkurinn var settur saman í Biarritz í Frakklandi og var komin til samsetningarstöðvarinnar í Mérignac í maí
í vor og vængirnir komu skömmu síðar en þeir voru smíðaðir í Martignas.
Falcon 8X vélin verður langdræg viðskipta- og einkaþota með háu farþegarými og verður lengri en fyrirrennari hennar,
Falcon 7X, sem kom á markaðinn árið 2005.
Falcon 8X kemur með nýrri hreyflum sem gera vélinni kleift að nota styttri flugbrautir auk þess sem vélin
verður 35% sparneytnari en sambærilegar vélar frá samkeppnisaðilunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.