flugfréttir
Dýrt fyrir flugfélögin að taka sveig framhjá Úkraínu
- Sum flugfélög munu þurfa að hækka flugfargjöld
Airbus A380 risaþota British Airways á leið til Hong Kong frá London Heathrow sl. fimmtudag
Mjög sennilegt er að sum flugfélög, sem fljúga á milli Evrópu og Asíu, muni hækka flugfargjöld þar sem flest þeirra þurfa nú að taka á sig krók framhjá Úkraínu í kjölfar þess er Boeing 777 vél Malaysia Airlines, flug MH17, var skotin niður í síðustu viku.
Viðbótarkostnaður bætist við hverja flugleið þar sem flugvélar þurfa að fljúga lengri flugleið og fara annaðhvort yfir Úkraínu
eða undir landið og yfir Svartahaf í stað þess að fljúga beina leið yfir en það hefur í för með sér að þær
eyða meira eldsneyti.
Flightradar24.com klukkan 13:33 í dag
"Ef þú lengir flugleiðina þá brenna vélarnar auknu eldsneyti þannig að þetta verður dýrara - Þannig að á endanum
verðum við að hækka fargjöldin eitthvað - sem er bara sanngjarnt", segir Alexandre de Juniac, framkvæmdarstjóri
Air France-KLM Group.
Flugsérfræðingar hjá ICF International Inc. reiknuðu út að m.a.v. að 800 farþegaþotur fari hjáleiðina norður fyrir Úkraínu, yfir Rússland vikulega, og að um 80% af þeim
vélum séu breiðþotur, þá er hver vél að lengja flugleiðina sína um 15 mínútur að meðaltali.
Lufthansa segir að félagið sé að beina öllum vélum sínum til Asíu yfir Búlgaríu, Tyrkland, suðurhluta Svartahafsins, yfir Georgíu og
áfram yfir Azerbaijan en við það lengist vinnutími áhafnarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.