flugfréttir

Malaysia Airlines íhugar að skipta um nafn

27. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:37

Boeing 777 vél Malaysia Airlines

Möguleiki er á því að stjórnendur Malaysia Airlines muni skipta um nafn á flugfélaginu malasíska sem væri partur af umfangsmikillri yfirhalningu sem félagið mun ganga í gegn á næstunni.

Mikið hefur dunið á flugfélaginu á þessu ári eftir að ein farþegaþota félagsins með 239 farþega innanborðs hvarf sportlaust í vor og fyrir 10 dögum síðan fórust 298 farþegar er önnur vél félagsins var skotin niður yfir Úkraínu.

Malysia Airlines, sem er ríkisflugfélag Malaysíu, mun einnig leita að nýjum fjárfestum til að kom að endurreisn ímynd félagsins eftir hörmungarnar tvær en þegar er byrjað á fyrsta stigi endurskipulagsins sem felur í sér hagræðingu á flugleiðum til að auka hagnað.

Hugh Dunleavy, rekstrarstjóri Malaysia Airlines, sagði í viðtali nýlega við The Sunday Telegraph að þrátt fyrir þessar tvær hörmungar að þá muni flugfélagið samt sem áður verða sterkara á endanum.

Dunleavy sagði að þegar hafði verið hafist handa við að skipuleggja framtíð félagsins og breytingar í rekstri þess en eftir að flug MH17 var skotið niður þá hefur því ferli verið hraðað enn frekar og eru margir möguleikar sem verið er að ræða um og þar á meðal að skipta um nafn á félaginu.

Einnig hefur Malaysia Airlines farið fram á að komið verði á fót öflugri eftirlitsstofnun sem fylgist grannt með þeim átakasvæðum í heiminum sem eru varasöm og vara flugfélög við því hvar er óhætt að fljúga yfir og hvar ekki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga