flugfréttir
AH5017: Rannsóknaraðilar komnir til Malí
Brak úr McDonnell Douglas MD-83 vél Air Algerie sem var í eigu Swiftair
Flugslysasérfræðingar eru komnir að flaki alsírsku farþegaþotunnar frá Air Algerie í Máli sem fórst í á leið sinni yfir Sahara-eyðimörkina frá Burkína Fasó til Alsír þann 24. júlí sl.
Bæði flugslysarannsóknnaraðilar og afbrotasérfræðingar eru á staðnum þar sem reynt verður að finna vísbendingar um
hvað grandaði vélinni sem var af gerðinni McDonnell Douglas MD-83 frönsk yfirvöld segja að flest bendi til þess að vélin hafi farist í slæmu veðri en ekki verða aðrir möguleikar þó útilokaðir.
Vélin sem fórst bar skráninguna EC-LTV
Báðir svörtu kassarnir fundust sl. föstudag, flugritinn og hljóðritinn og voru þeir sendir til borgarinnar Gao í Malí
þar sem franski herinn hefur bækistöðvar.
Hermaður í Burkína Fasó, sem var meðal þeirra sem kom fyrstur á staðinn, tók myndband af flakinu þar sem
aðeins mátti sjá málmbúta og brunnið svæði en að öðru leyti sáust engir hlutir á borð við búk eða stél sem hægt var að bera almennileg
kennsl á.
Sökum þess hversu afskekt svæðið er þá er möguleiki að það gætu hindrað rannsókn slyssins þar sem vélin fórst
á svæði sem er bæði auðn og fjalllendi við rætur Sahara-eyðimerkurinnar sem féll í hendur stjórn uppreisnarmanna
árið 2012.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.