flugfréttir
Flugmenn Lufthansa gagnrýna félagið fyrir að halda áfram flugi til Ísrael
Flugstjórar hjá Lufthansa eru mjög óánægðir með ákvörðun félagsins um að halda áfram að fljúga í Ísrael þar sem þeir óttast að þeir gætu orðið fyrir eldflaugaárás er þeir fljúga til Ben Gurion flugvallarins í Tel Aviv.
Lufthansa og Air Berlin hafi bæði ákveðið að halda áfram flugi til Tel Aviv en Joerg Handwerg, stjórnarmeðlimur í
þýsku flugmannasamtökunum Vereinigung Cockpit segir að svo virðist sem að þessi ákvörðun sé tekin
út frá pólitískum sjónarmiðum þar sem ekki sé verið að taka tillitis til öryggi farþega og starfsmanna.
"Við eigum ekki að vera að fljúga til svæða þar sem ríkja átök og þar sem verið er að skjóta vopnum nálægt
flugvöllum", segir Handwerg.
Talsmaður Lufthansa segir að stöðugt sé verið að skoða ástandið út frá áreiðanlegum heimildum um ástandið
í Ísrael.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.