flugfréttir
Maður á strönd varð fyrir flugvél og lést
- Nauðlenti á strönd í Venice í Flórída eftir að hafa misst afl
Vélin, sem er af gerðinni Piper Cherokee, sést hér á ströndinni
Maður lést og dóttir hans slasaðist er þau urðu fyrir lítillri flugvél er þau voru á göngu á strönd í Flórída í gær en flugvélin hafði misst afl á mótor og var að nauðlenda á ströndinni.
Lögreglan í Sarasota sagðist hafa fengið neyðarboð um Piper-flugvél sem hafði misst afl og taldi flugmaður vélarinnar
að hann gæti ekki náð því að drífa aftur inn á flugvöllinn í Venice eftir að hafa snúið við.
Flugmaðurinn ætlaði sér að reyna að lenda í flæðarmálinu á ströndinni en hann var með eiginkonu
sinni um borð og sakaði þau ekki.
Þá var tilkynnt um konu sem fann fyrir verkjum í brjósti eftir að hafa orðið vitni að slysinu og var hún einnig flutt á sjúkrahús.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.