flugfréttir

Emirates ætlar að hætta að fljúga yfir Írak

28. júlí 2014

|

Frétt skrifuð kl. 08:29

Risaþota Emirates á flugi

Dúbæska risaflugfélagið Emirates ætlar að hætta að fljúga yfir Írak af ótta við flugskeytaárásir frá íslömskum uppreisnarmönnum í kjölfar árásarinnar er flug MH17 var skotið niður yfir Úkraínu.

Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að véluym félagsins verði beint eftir öðrum flugleiðum til að forðast hættuleg svæði á borð við Írak og kallar hann á skýrari fyrirmæli frá flugmálayfirvöldum um hvaða svæði í heiminum er óhætt að fljúga yfir.

Emirates ætlar að fljúga bláu leiðina frekar en hingað til hefur
rauða leiðin verið flogin á leið til Evrópu frá Dubai

"Við getum ekki haldið áfram að segja að þetta snúist um pólitík eða stríð - Við verðum að gera eitthvað - Við verðum að taka nautið á hornunum", segir Clark.

Ekkert flugfélag hefur flogið eins mikið yfir Írak og Emirates sem er í miðri fluglínunni milli Dubai og fjölda áfangastaða í Evrópu en alls eru t.a.m. 50 vélar á vegum Emirates sem fljúga yfir Írak á hverjum degi sem eru eingöngu á leið til Bretlands.

Clark segir að hann hafi tekið þessa ákvörðun eftir að Bandaríkin rannsökuðu hvort að uppreisnarmenn í Írak hafi einhverntímann fengið langdræg flugskeyti frá Sýrlandi sem drífa í meira en 30.000 feta hæð.

Clark segir að hann sé ekki sáttur við ástandið og verði öllum flugleiðum Emirates breytt á næstu 10 dögum til að forðast Írak.

Nýju flugleiðirnar munu taka vélar Emirates yfir Sádí-Arabíu, Rauðahafið og yfir Egyptaland en við það gæti flugtíminn lengst um allt að 45 mínútur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga