flugfréttir
Pirraður flugstjóri þrætir við flugumferðarstjóra
Flugstjórinn hjá Delta var eitthvað í fúlu skapi þennan daginn
Eitthvað fór flugumferðarstjóri einn í Atlanta í taugarnar á flugstjóra hjá Delta Air Lines eftir að hann lenti á Hartsfield-Jackson flugvellinum eftir flug DL2422 frá Charlotte sl. föstudag.
Hér er upptaka þar sem flugumferðarstjórinn biður hann um að yfirgefa braut 27R gegnum akstursbraut Mike og bíða við
Dixie en skömmu síðar lætur hann vita að hann hafi tekið Lima og sé því á vitlaustri leið að hliðinu.
Flugstjórinn svarar því með að segja að honum líki ekki við framkomu hans en flugumferðarstjórinn
segir honum að hann sé aðeins að vara hann við áður en hann heldur áfram á Lima.
"Ó Guð, það er önnur flugvél þarna - hún er í sirka 9 kílómetra fjarlægð", svara flugstjórinn og er orðin frekar
pirraður en í kjölfar hefjast frekari samræður og má áætla að flugstjórinn hafi farið öfugum megin fram úr þennan morguninn.
Hér að neðan má sjá allt samtalið sem var sett á vefsíðuna LiveLeak en m.a. hefur CNN fjallað um málið.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.