flugfréttir
Vill að farþegar geti séð hvort flugleiðin liggi yfir átakasvæði
- Vill að flugfélögin birti flugleiðir á vefsíðum sínum
Ljósmynd tekin út um glugga á Airbus A340-600 vél Thai Airways yfir Afghanistan á leið frá Bangkok til London Heathrow
Farþegasamtökin FlyersRights.org í Bandaríkjunum hafa hvatt öll flugfélög til þess að birta kort af þeim flugleiðum sem félögin fljúga yfir á vefsíðum sínum svo farþegar geti séð hvort viðkomandi flugleið fari yfir átakasvæði í þeim tilgangi að farþegar geti þá gert upp við sig hvort þeir bóki flugið eða sleppi því.
Paul Hudson, formaður samtakanna, segir að flugfélögin eigi ekki að fela þessar upplýsingar og hvetur þau til
að deila flugleiðum meðal farþega.
Þegar júmbó-vél Pan Am var sprengd upp yfir skoska bænum Lockerbie kom í ljós að stjórnvöld höfðu
fengið viðvörun um hugsanlega árás en þeim upplýsingum var haldið frá farþegum og starfsmanna flugfélaganna
Hudson segir að í dag séu farþegar ekki meðvitaðir um ef flugfélag flýgur yfir landsvæði þar sem átök og styrjaldir geysa
þar sem uppreisnarmenn búa yfir flugskeytakerfi sem getur skotið flugskeytum upp í þá flughæð þar sem farþegaþotur
halda sig í.
Slík svæði eru t.a.m. Úkraína, Rússland, Sýrland, Írak, Sinai-skaginn í Egyptalandi, Gaza-svæðið, Norður-Kórea, Pakistan
og Afghanistan. Önnur átakasvæði sem gætu skotið niður flugvélar úr lágri flughæð eru t.d. Líbýa, Yemen og Malí.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.