flugfréttir

PAN PAN PAN - Myndband úr stjórnklefa - Hár olíuhiti í hreyfli 3

- Flugmenn bregðast yfirvegað við atviki sem kom upp á leið til Shanghai

4. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:25

Það er ekki oft sem að myndbandstökuvélin er í gangi í stjórnklefanum þegar bilun kemur um borð en hér sjáum við flugmenn Swiss International Air Lines bregðasti við slíkum aðstæðum.

Við erum um borð í Mike November (HB-HMN) Airbus A340 vél svissneska flugfélagsins sem var á leið til Shanghai þann 26. nóvember árið 2009 sem flug LX-188 en vélin var nálægt Vín í Austurríki þegar olíuhiti fór að hækka í hreyfli númer þrjú sem er innri hreyfill á hægri væng.

Flugstjórinn tilkynnir farþegum að bilun hafi komið upp og sé
nauðsynlegt að snúa við

Í þessu 15 mínútna myndbandi sjáum við allt ferlið sem á sér stað frá því flugmennirnir verða varir við olíuhitann og þar til vélinni er snúið við til Zurich eftir að búið er að fara yfir viðeigandi gátlista en vélin þurfti að losa sig við 53 tonn af eldsneyti fyrst.

Myndbandið sýnir vel hversu fagmannlega áhöfnin tókst á við aðstæðurnar eins og þetta væri hver annar hefðbundinn dagur í fluginu en daglega koma upp ýmsar sambærilegar aðstæður í farþegaflugi víða um heiminn. Þótt ekki sé endilega um neyðarástand að ræða í öllum slíkum tilvikum þá er oft snúið við þar sem öryggi farþega og áhafnarinnar er ávallt í fyrirrúmi.

Þess má geta að vandamál kom upp í sömu vélinni, HB-JMN, daginn eftir, þann 27. nóvember 2009, þegar bilun kom upp í flöpsum eftir flugtak frá Zurich á leið til Sao Paulo.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga