flugfréttir
MD-11 vélarnar gjarnar á að lenda harkalega
- NTSB fer fram á úrræði vegna öryggisþátta MD-11 vélanna
McDonnell Douglas MD-11 vél KLM Royal Dutch Airlines
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur sent frá sér tilmæli vegna öryggisatriða er varðar McDonnell Douglas MD-11 vélarnar.
NTSB hvetur eftirlitsstofnanir í fluginu til að fara fram á að aukabúnaði sé komið fyrir í flugstjórnarklefa á McDonnell Douglas MD-11 vélunum til að koma
í veg fyrir klúðurslegar lendingar sem hafa ollið skemmdum á sumum vélum þar sem þær hafa skoppað á brautinni og hlotið
sprungur í vængi auk fjölda annarra atvika sem upp hafa komið varðandi vélarnar.
Samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum eru 13 atvik skráð þar sem MD-11 vélin hefur lent mjög harkalega frá árinu 1994
til ársins 2010 sem er hæsta hlutfallið af öllum þeim 27 farþegaþotum sem framleiddar eru í hinum vestræna heimi.
Yfir 140 McDonnell Douglas MD-11 vélar eru í umferð í heiminum en flestar eru notaðar í fraktflugi en KLM Royal Dutch Airlines
er eina flugfélagið í heimi sem notar vélarnar enn í farþegaflugi en það mun þó taka enda í október í haust.
Harkaleg lending hjá FexEx árið 2008 á Paris (CDG)
NTSB hvetur bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) til að herða kröfur sem gerðar eru til flugmanna sem fljúga MD-11 vélunum
og er mælt með að þeir muni lenda þeim a.m.k. þrisvar sinnum á 90 daga tímabili til að viðhalda færni sinni.
Fljótlega á tíunda áratug síðustu aldar fór að koma í ljós að óvenju krefjandi var fyrir flugmenn í mörgum tilfellum að lenda
MD-11 vélunum sökum hversu næm hún lætur af stjórn í lágri flughæð og hafa flugmenn einnig átt það til að fara með stélið
ofan í brautina í flugtaki. Boeing hefur nokkrum sinnum uppfært hugbúnað í stjórntækjum vélarinnar síðan að flugvélaframleiðandinn
keypti McDonnell Douglas verksmiðjurnar.
Í tilmælum frá NTBS er vitnað í atvik er átti sér stað árið 2009 er MD-11 fraktvél frá FedEx skoppaði ítrekað í lendingu
á Narita-flugvellinum í Tókýó með þeim afleiðingum að vinstri vængurinn brotnaði af. Báðir flugmenn vélarinnar létust
og vélin brann til kaldra kola á flugvellinum.
Ári síðar lenti fraktvél frá Lufthansa Cargo mjög harkalega á flugvellinum í Riyadh í Sádí-Arabíu í júlí árið 2010
með þeim afleiðingum að vélin brotnaði í tvennt. Báðir flugmenn vélarinnar lifðu slysið af en annar þeirra slasaðist þó mikið.
Samkvæmt Avherald.com hafa margar MD-11 vélar farið með stél ofan í braut í lendingu eða flugtaki eða vélunum lent harkalega og í mörgum tilvikum hafa það verið vélar frá FedEx eða UPS.
NTSB segir að í mörgum tilfellum þar sem MD-11 vélum hefur verið lent harkalega hafa verið um að ræða mistök hjá flugmönnum
sem hafa ekki reist nefið upp rétt fyrir lendingu.
Einnig segir NTSB að annað vandamál sé hár lendingarhraði vélarinnar og staðsetning stjórnklefans sem er talið
gera það að verkum að flugmenn eiga oft erfitt með að vita hvenær nefhjólið hefur snert brautina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.