flugfréttir

MH370: Tölvuþrjótar brutust inn í tölvur hjá rannsóknaraðilum

- Náðu gögnum úr tölvupósthólfum og hörðum diskum frá flugslysasérfræðingum

20. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:51

Yfirvöld í Malaysíu reyna nú í samvinnu við Interpol að komast að því hverjir brutust inn í tölvur hjá rannsóknaraðilum

Stjórnvöld í Malaysíu eru nú að rannsaka tölvuglæp þar sem tölvuþrjótar eru sagðir hafa hakkað sig inn í tölvur sérfræðingar sem hafa unnið að rannsókn á hvarfi malasísku farþegaþotunnar, flug MH370.

Tölvuþrjótarnir eru sagðir hafa komist yfir upplýsingar úr tölvum rannsóknaraðila með því að senda vírus sem var dulbúin sem frétt um hvarf vélarinnar en gögnin sem þeir komust yfir voru færð yfir á netþjón sem staðsettur er í Kína.

Hakkararnir náðu upplýsingum úr tölvupósti rannsóknaraðila, af harða diski en meðal annars er um að ræða gögn af fundum og leynileg skjöl er rengist rannsókninni.

Tölvuöryggisdeild Malaysíu, Cybersecurity Malaysia , segir að verið sé að rannsaka málið í samvinnu við Interpol og reynt verði að komast að því hver standi á bakvið tölvuglæpinn.

Fljótlega eftir að malasíska farþegaþotan hvarf voru malasísk stjórnvöld ásökuð um að halda upplýsingum leyndum frá umheiminum og voru margir sem grunuðu yfirvöld í Malaysíu um að vera með óhreint mjöl í pokahorninu.

Amirudin Abdul Wahab, framkvæmdarstjóri Cybersecurity Malaysia, segir að yfirvöld hafi gert allar upplýsingar um hvarf vélarinnar opinberar fyrir almenningi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga