flugfréttir

Hefði flug MH370 ekki átt að koma fram á ratsjárstöð á Cocos-eyjum?

- Prófessor í geimvísindum veltir fyrir sér ratsjársambandi í Indlandshafi

24. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:37

Ratsjárstöðvar eru staðsettar á Cocos-eyjum og Jólaeyjum

Duncan Steel, breskur stjörnufræðingu og prófessor í geimvísindum, sem búsettur er á Nýja-Sjálandi, hefur varpað fram þeirri spurningu á bloggsíðu sinni hvort að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hefði ekki komið fram á radar á leið sinni suður í Indlandshafið í ljósi þess að ratsjárstöðvar eru staðsettar bæði á Cocos-eyjum og á Jólaeyjum (Christmas Islands).

Eins og kom fram skömmu eftir malasíska farþegaþotan hvarf þann 8. mars í vor var talið að vélin hefði beygt af leið til vesturs yfir Thailands-flóa og flogið norðvestur eftir Malacca-sundi, norður af Súmötru og inn á Andaman-haf en þaðan tekið beygjuna beint til suðurs og flogið í margar klukkustundir þar til talið er að hún hafi farist í Suður-Indlandshafi.

Duncan Steel, hefur aflað sér gagna frá sérfræðingum og birt lista yfir staðsetningu á þeim ratsjárstöðum sem eru að finna bæði á eyjum í Indlandshafi og í Indónesiu.

Steel hefur velt fyrir sér hversu öflug sú stöð sé og hvort að einhverjar stöðvar hefði ekki náð að greina merki frá malasísku vélinni m.a.v. fjarlægðina milli vélarinnar og stöðvarinnar og hvort bein lína hafi verið þar á milli.


Ratsjárstöðvar eru bæði staðsettar á Cocos-eyjum og Jólaeyjum sem gætu hafa greint malasísku vélina ef hún á að hafa flogið suður í Indlandshafið


Steel komst að því að 52 ratsjárstöðvar eru staðsettar í Thailandi, Malaysíu, Indónesíu og á Cocos-eyjum og Jólaeyjum sem eru staðsettar milli Indónesíu og Ástralíu sem sjá má á kortinu hér að ofan og einnig setti hann upp töflu þar sem hann reiknaði út hámarksfjarlægð sem hver ratsjárstöð ætti að geta drifið m.a.v. hvort vélin hafi verið í 5.000 feta hæð, 10.000 fetum, 20.000 og 35.000 fetum.


Duncan Steel fékk upplýsingar yfir ratsjárstöðvar sem staðsettar eru í Malaysíu, Indónesíu, Thailandi og þær sem tilheyra Ástralíu en hann setti saman lista yfir staðsetningu, hæð yfir sjó og mögulegt drægi


Dr. Duncan Steel hefur meðal annars
unnið að rannsóknum fyrir
bandarísku geimvísindastofnunina, NASA

Duncan Steel hefur komið að mörgum vísindaverkefnum og hefur hann uppgötvað 12 loftsteina og einnig hefur hann unnið í samstarfi við NASA þar sem hann hefur rannsakað loftsteina og halastjörnur og unnið að þróun á tækni til að grein og vara við hættu á að loftsteinum sem gætu rekist á jörðina.

Alltumflug.is hafði samband við Duncan Steel og segist hann ekki beint vera að furða sig á því hvers vegna engin af þessum stöðvum greindu vélina á leið sinni suður í Kyrrahafið.

"Ég er aðallega að reikna út hversu langt ratsjárstöðvarnar drífa og hvort þær voru í gangi - Hvort þær náðu að greina MH370 hef ég ekki hugmynd um - Ég er aðeins að rýna í vísindin og tölfræði", sagði Steel í tölvupósti við Alltumflug.is







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga