flugfréttir
Farþegi sem læsti sætisbaki með Knee Defender olli deilum og öryggislendingu
- Knee Defender kemur í veg fyrir að hægt sé að halla sætisbakinu
Maðurinn hafði læst sætisbakinu fyrir framan sig með búnaði sem kallast Knee Defender en flugfélögin hafa flest bannað slíkt tæki
Það getur farið í taugarnar á sumum þegar farþeginn fyrir framan hallar niður sætisbakinu en farþegaþota frá United Airlines, sem var í innanlandsflugi í Bandaríkjunum á leið frá Newark til Denver, neyddist til að lenda í Chicago á dögunum eftir að illindi blossuðu upp vegna hallandi sætisbaks.
Deilurnar hófust er karlmaður í miðjusæti í tólftu sætatöð læsti sætisbakinu fyrir framan sig með ólöglegum búnaði er kallast Knee Defender sem kemur
í veg fyrir að farþeginn í sætinu geti sett bakið niður en búnaðinn má kaupa á Netinu á 20 bandaríkjadali.
Farþeginn ákvað að læsa sætisbakinu á meðan hann var með fartölvu sína á borðinu en konan sem sat í sætinu fyrir
framan var ekki sátt við það og þurfti að kalla til flugliða sem bað manninn að taka lásinn af.
Farþeginn neitaði því sem varð til þess að konunni hitnaði í hamsi, tók kaffibolla sinn og kastaði í manninn en upp úr því urðu illindin það alvarleg að flugstjórinn ákvað að snúa til O´Hare-flugvallarins í Chicago þar sem vélin lenti skömmu síðar og losaði sig við farþegana til lögreglu sem sem veitti þeim viðtöku.
Knee Defender er búnaður sem flest flugfélögin í Bandaríkjunum banna í flugi en þá hafa flugfélög
á borð við Spirit Airlines og Allegiant Air tekið búnaðinn úr sætunum í sínum vélum sem lætur þau halla aftur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.