flugfréttir
Aldraður farþegi slökkti á hreyflum og greip í stýri flugmannsins
- 23 ára flugmaður náði hetjulega að nauðlenda eftir árás frá farþega
Flugmaðurinn, sem er 23 ára, náði á hetjulegan hátt að berjast við farþegann og nauðlenda vélinni
Ungur flugmaður í Ástralíu náði á hetjulegan hátt að nauðlenda lítilli tveggja hreyfla flugvél á sama tíma og hann reyndi að verjast árás frá öldruðum farþega sem hann var að fljúga með sem gerði tilraun til að ná stjórn á vélinni.
Farþeginn, sem er 82 ára, hafði pantað leiguflug með Australia By Air í Sydney og þurfti hann að komast til smábæjarins Cowra til að sinna viðskiptaerindum.
Flugmaðurinn sem flaug farþeganum er 23 ára og fóru þeir í loftið frá Bankstown-flugvellinum í Sydney á tveggja hreyfla vél af gerðinni Beechcraft Model 76, og sat farþeginn við hlið flugmannsins en vélin tekur þrjá farþega.
Stjórnklefinn í vélinni þar sem farþeginn greip í stýri flugmannsins
Skömmu síðar, þegar vélin var á leiðinni til Cowra, sem er í 318 km fjarlægð frá Sydney, drap farþeginn á hreyflunum og greip í stýri flugmannsins
Flugmaðurinn náði að senda út neyðarkallið "pan pan" og berja farþegann frá sér á sama tíma og hann reyndi að ná stjórn á vélinni aftur.
David Trevelyan, framkvæmdarstjóri Australia By Air, hrósaði flugmanninum fyrir skjót og hárrétt viðbrögð og
fyrir að hafa sýnt einstaklega mikla færni í að takast á við þessar erfiðu aðstæður.
"Það var ekkert grunsamlegt við þennan mann. Hann kom inn og sagðist vilja komast til Cowra og sagði að hann myndi
aðeins vera 15 mínútur þar sem hann þurfti að skrifa undir einhver skjöl - Þetta var mjög hefðbundin beiðni frá viðskiptavinum okkar".
"Þetta hefur verið mjög erfitt að takast á við farþegann, senda út neyðarkall, undirbúa nauðlendingu og koma hreyflunum
aftur í gang", segir Trevelyan.
Flugmaðurinn náði að svífa vélinni og lenda á akrinum þar sem neyðarteymi beið mannanna tveggja en sá gamli
uppskar höfuðáverka og meiðsl eftir átökin sem hann stofnaði til og voru þeir báðir fluttir á sitthvort sjúkrahúsið en flugmaðurinn
varð fyrir andlegu áfalli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.