flugfréttir
O´Leary vill stofna „ísraelskt Ryanair“ flugfélag
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Ryanair hefur í hyggju að stofna lágfargjaldaflugfélag Ísrael og segir Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri félagsins, að viðræður hafi staðið yfir við ísraelsk yfirvöld.
Ryanair hefur áður lýst yfir áhuga að fljúga til Ísrael en þær hugmyndir hafa nú breyst í áætlanir með að koma
á fót „ísraelsku Ryanair“ félagi en ríkisstjórn landsins vill samt sem áður vernda hag ríkisflugfélagsins, El Al Israel Airlines.
Ryanair sér fyrir sér að að hið nýja flugfélag myndi fljúga frá Ísrael til Evrópulanda á borð við Bretlands, Þýskalands
og einnig til Rússlands.
"Við erum í viðræðum við ísraelsk stjórnvöld en vandamálið er að þegar maður fer lengra en Evrópa nær, þá þarf að
hafa ísraelskt flugrekstrarleyfi", segir O´Leary.
Þá hefur félagið einnig áform uppi um að hefja flug frá Dublin til Moskvu og til Pétursborgar í Rússlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.