flugfréttir
Japan Airlines pantar yfir 50 vélar frá Mitsubishi Aircraft og Embraer
Japan Airlines hefur gert pöntun í yfir 50 farþegaþotur, bæði frá Embraer í Brasilíu og frá Mitsubishi Aircraft Corporation.
Félagið tilkynnti í dag að pantaðar hafa verið 32 Mitsubishi Regional Jet (MRJ) vélar og 15 vélar E-170 og E-190 frá Embraer með kauprétti á 12 slíkum vélum
til viðbótar.
Japan Airlines segir að félagið gerir ráð fyrir að fá fyrstu Regional Jet vélina frá Mitsubishi árið 2021 á meðan þoturnar
frá Embraer verða afhentar árið 2015.
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) er fyrsta farþegaþotan sem smíðuð er í Japan en vélin mun koma í tveimur útgáfum,
MRJ 70 og MRJ 90 og munu vélarnar taka 70 og 90 farþega og hefur framleiðandinn fengið pantanir í yfir 220 eintök.
Skrokkurinn af fyrstu Mitsubishi Regional Jet (MRJ) vélinni
Mitsubishi Aircraft var stofnað árið 2008 en Mitsubishi Regional Jet (MRJ) vélarnar munu veita farþegaþotum frá Bombardier og Embraer samkeppni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.