flugfréttir
Silk Way fær sína fyrstu Boeing 747-8 fraktvél
Boeing 747-8F vél Silk Way West Airlines
Frakflugfélagið Silk Way West Airlines hefur tekið við sinni fyrstu júmbó-fraktvél af gerðinni Boeing 747-8F en vélin, sem ber skráninguna VQ-BVB, flaug í vikunni afhendingarflug frá Paine Field til Baku í Azerbaijan.
Silk Way West Airlines pantaði tvær Boeing 747-8F vélar í fyrra að andvirði 81 milljarðs króna samkvæmt listaverði
en félagið hefur í flota sínum bæði Boeing 747-400F vélar og Boeing 767-300 fraktvélar.
Silk Way er leiðandi fraktflugfélag í Mið-Asíu sem veitir frakflugsþjónustu til Bretlands, Evrópu og Asíu en félagið
flýgur m.a. til Suður-Kóreu, Kína og til Hong Kong.
Boeing 747-8F vélin tekur 16% meira af frakt m.a.v. 747-400F auk þess sem hún er sparneytnari en komið hefur
í ljós að vélin er 1 prósent hagkvæmari en gert var ráð fyrir er kemur að eldsneytisnotkun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.