flugfréttir

Myndband: Rolls-Royce-hreyfill settur í gang í garðinum

28. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:57

Það eru ekki allir sem hafa Rolls-Royce hreyfill í garðinum

Það er ekki slæmt að eiga sinn eigin þotuhreyfill í garðinum hjá sér til að ræsa við og við, nágrönnunum til yndisauka.

Hreyflaáhugamaðurinn Justin Woolgar segir að á meðan margir kunningjar hans hafi áhuga á bílum, klifra fjöll eða eru á kafi í listinni, þá eyðir hann sínum frítíma í að safna og fikta með gamlar vélar og hreyfla.

Þessi hreyfill, sem sést hér í meðfylgjandi myndbandi, var smíðaður fyrir 42 árum og er hann af gerðinni Rolls-Royce RB211-22B sem er næstum sömu tegundar og hreyflar á vélum Icelandair.

Þessi hreyfill var seinast notaður í áætlunarflugi undir Lockheed TriStar L1011 vél Trans World Airlines (TWA) en hann hætti að þjóna þeim tilgangi árið 1992.

Justin Woolgar hefur gert margar tilraunir við að setja
saman og braska með ýmsar tegundir af mótorum en
Rolls-Royce RB211-22B er nýjasta viðfangsefnið

Hreyfillinn var skilin eftir utandyra í 5 ár á ónefndum flugvelli þar til honum var bjargað og settur í ganghæft ástand að nýju ef marka má lýsingu sem fylgir myndbandinu á YouTube en sá aðili, sem setur þetta myndband á vefinn, segist ekki vera vélvirki né flugvirki og ekki starfa við slíkt.

Hann hefur þó fengið aðstoð frá kunnáttumönnum til að koma hreyflinum í gang og má sjá að það fýkur í flest skjól er hann er ræstur.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga