flugfréttir

Fyrsta 787-9 sett í geymslu innan um þungu Draumfarana tíu

29. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:32

Boeing hefur gengið erfiðlega með að finna kaupanda að 10 Dreamliner-vélum sem eru of þungar en um er að ræða fyrstu eintökin sem voru smiðuð

Fyrsti Draumfarinn af lengri gerðinni, Boeing 787-9, hefur slegist í hópinn meðal þeirra tíu Dreamliner-vél, sem hafa verið settar í geymslu á 11/29 brautinni á Paine Field.

Boeing hefur gengið erfiðlega að finna kaupendur fyrir fyrstu Dreamliner-vélarnar sem voru smíðaðar en um er að ræða þær vélar sem voru of þungar og hefur þeim verið stillt upp á brautinni þar sem óvísst er um örlög þeirra.

Vélarnar 10 hafa verið í geymslu sl. mánuði á
11/29 brautinni á Paine Field

Samt sem áður er talið að Boeing eigi ekki eftir að lenda í erfiðleikum með að selja þá vél eins og hinar 787-8 vélarnar tíu en um er að ræða aðra Boeing 787-9 vélina sem var smíðuð frá upphafi og er hún númer 133 í röðinni í Dreamliner-smíðinni og var notuð í tilraunaflug fyrir lengri gerðina.

Vélin, sem ber skráninguna N789FT, er í verksmiðjulitum Boeing en talsmaður flugvélaframleiðandans segir að það sé kaupandi komin að vélinni en ekki er hægt að gefa upp hver sá aðili er.

Hinar Boeing 787-8 vélarnar tíu, sem hafa verið geymdar á svæðinu, hafa fengið viðurnefndið „terrible teens“. en hreyflanir hafa verið teknar undan þeim öllum og er óvíst hvað verður um þær.

Fyrir 787-9 vélina í hópnum þá mun það taka einhverja mánuði að standsetja hana fyrir afhendingu en rífa þarf allan þann búnað í vélinni sem var notaður til tilraunaflugsins og setja þarf upp farþegarými og innréttingar ásamt fleiri hlutum en fáir sérfræðingar í fluginu geta giskað á hvað verður um hinar vélarnar tíu.

N789FT kom til Íslands í apríl þar sem vélin var við flugprófanir á Keflavíkurflugvelli







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga