flugfréttir

Öllu flugbanni aflétt kringum gossvæðið - Flugumferðin fer þó enn suður fyrir landið

29. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:49

Skjáskot af Flightradar24 kl. 14:42 í dag - Eins og sjá má fer flugumferðin suður fyrir landið

Öllum takmörkunum á flugi yfir eldgosinu, sem hófst í nótt norðan Vatnajökuls, hefur verið afleitt og gilda engar takmarkanir um flug vegna gossins.

Eldgosið hefur því ekki nein áhrif á flugumferð um íslenska flugumsjónarsvæðið og hefur Veðurstofa Íslands lækkað viðbúnaðarstig vegna flugumferðar frá rauðu og niður á appelsínugult stig er kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Jarðfræðingar og sérfræðingar telja gosið hafa verið það lítið að fluginu stafaði ekki hætta af en ekki var um sömu tegund af eldgosi að ræða og er Eyjafjallajökull gaus árið 2010 með tilheyrandi gosmökki sem steig langt upp í andrúmsloftið og lamaði flugsamgöngur í Evrópu.

Aðeins litlir gufurbólstrar lögðu til himins frá sprungugosinu í
nótt og í morgun

Lítið sprungugos hófst skömmu eftir miðnætti í Holuhrauni og var það vel sýnilegt í vefmyndavélum í nótt en verulega hefur dregið úr því og voru aðeins litlir gufubólstrar sem stigu upp í loftið.

Þrátt fyrir að öllum takmörkunum á flugi hefur verið aflétt þá hefur öll flugumferð milli Evrópu og Norður-Ameríku farið sunnan fyrir landið en á þessum tíma eru vanalegar margar flugvélar sem fljúga beint yfir Ísland á leið sinni yfir Atlantshafið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga