flugfréttir
Boeing afhendir fyrstu Dreamliner-vélina til Xiamen Airlines
Fyrsti Draumfarinn fyrir Xiamen Airlines
Boeing heldur áfram að afhenda Dreamliner-vélar til flugfélaga sem eru að taka við fyrstu eintökunum en kínverska flugfélagið Xiamen Airlines fékk sína fyrstu vél afhenta í gær.
Xiamen Airlines er þriðja flugfélagið í Kína til að fá Boeing 787 vél afhenta en hin flugfélögin sem eru komnar með Dreamliner-vélarnar í Kína
eru Hainan Airlines og China Southern Airlines en flugfélagið mun nota vélina í áætlunarflugi frá kínversku borginni Xiamen til Evrópu, Norður-Ameríku og til Ástralíu.
Xiamen Airlines var stofnað árið 1984 af kínversku flugmálayfirvöldum og kínversku ríkisstjórninni og hóf félagið flugrekstur
með tveimur Boeing 737-200 vélum en floti félagsins í dag telur 106 farþegaþotur.
Félagið er í dag sjötta stærsta flugfélagið í Kína og flýgur það til 218 áfangastaða í innanlandsflugi og til 26 borga í millilandaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.