flugfréttir

Viðamikil viðgerð á Newark eftir að veitingabíll ók á flugvél Air India

- Boeing 777-300ER vél AI hefur verið kyrrsett í 13 vikur eftir óhappið

30. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:26

Ekkert flugskýli er laust á Newark-Libery og hefur því þurft að gera við Boeing 777-300ER vél Air India utandyra

Viðamikil viðgerð fer nú fram á Boeing 777-300ER vél Air India á Newark-Liberty flugvellinum í Bandaríkjunum eftir að ökutæki með flugvélamat ók upp undir stélhlutann á vélinni í byrjun sumars.

Vélin, sem ber skráninguna VT-ALT, var tilbúin fyrir flug frá Newark til baka til Bombay þann 4. júní sl. þegar eldhúsbíll frá Flying Food Group ók upp undir vélina á flugvellinum en 335 farþegar áttu bókað með vélinni.

Vélin var tekin úr umferð eftir atvikið og hefur verið kyrrsett á EWR í New Jersey í allt sumar og hefur mjög umfangsmikil viðgerð farið fram á vélinni þar sem sagt er að skipta þurfi um aftara þrýstingsþilið í vélinni og sé um rándýra viðgerð að ræða.

Myndir sem tekin var eftir að óhappið átti sér stað þann 4. júní sl.



Á myndunum má sjá að búið er að fjarlægja stélið af vélinni og þá var vinstri hreyflinninn tekin af og sendur til Bombay þar sem hann var settur á aðra Boeing 777 vél Air India sem varð fyrir tjóni eftir að þeirri vél var flogið inn í hóp fugla.

Air India hefur 11 aðrar Boeing 777-300ER vélar í flotanum en félagið hefur lagt nokkrum Boeing 777 vélum af gerðinni -200LR þar sem félagið segir þær vera of dýrar í rekstri og eyða of miklu eldsneyti og hafa áætlanir um að selja síðustu vélarnar ekki gengið eftir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga