flugfréttir
MH370: „Ef vélin er þarna þá munum við finna hana“
- Fugro Survey vongóðir um að finna flug MH370

Búið er að kortleggja 2/3 af hafsbotninum á aðalleitarsvæðinu en leitin þar hefst um miðjan september eða um 10 dögum á eftir áætlun
Daniel O´Malley, talsmaður rannsóknarnefndar flugslysa í Ástralíu, er vongóður um að malasíska farþegaþotan muni finnast í Indlandshafi þegar næsta lotan í leitinni hefst í september.
"Við verðum að hafa í huga að það tók 2 ár að finna flak Air France-vélarinnar sem fórst í Atlantshafi árið 2009 þótt
að síðasta staðsetning flugs AF447 var mjög nákvæm - Við erum að glíma við mun stærra svæði og krefjandi
aðstæður", segir O´Malley.
Aðstoðarforsetisráðherra Ástralíu, Warren Truss, sendiherra Malaysíu í Ástralíu og He Jianzhong,
varasamgönguráðherra Kína, kynntu í dag 58 staðsetningar sem koma helst til greina þar sem flak vélarinnar gæti verið
að finna á leitarsvæðinu í Suður-Indlandshafi.
Hér má sjá hvar mesta áherslan verður lögð á að leita ásamt öðrum leitarsvæðum
"Sjöundi hringboginn þar sem sjöunda og síðasta merkið kom frá vélinni til Inmarsat-gervitunglsins er enn í dag
sterkasta vísbendingin sem við höfum - Við erum mjög sannfærðir um að vélin muni finnst í kringum þann boga", segir O´Malley
Tvö skip á Suður-Indlandshafi hafa nú þegar kortlagt um 2/3 af 60.000 ferkílómetra af hafsbotninum á svæðinu með sónarbúnaði
sem er undirbúningur fyrir neðansjávarleitina sjálfa sem hefst í næsta mánuði en þá munu þrjú önnur skip bætast
við, tvö skip frá Fugro Survey Australia, sem er fyrirtækið sem var valið til að taka að sér leitina, en það mun leggja
til skipin Equator og Discovery og þá mun malasíska leitarskipið GO Phoenix einnig mæta á svæðið.
Annað skipið, Fugro Equator, er nú þegar í Ástralíu
"Togfiskurinn" verður notaður í leitinni
Hvert skip mun draga á eftir sér sérstakan sónarbúnað sem kallast "Togfiskurinn" eða "Towfish" sem verður
dregin í um 100 metra hæð yfir sjávarbotninum sem á þessu svæði nær niður á allt að 6 kílómetra dýpi en toglínan, sem
dregur búnaðinn, er um 10 kílómetra löng.
Það er bandaríska fyrirtækið EdgeTech sem framleiðir Togfiskinn en hann hefur verið m.a. notaður til neðansjávarleitar
að gömlum tundurduflum og sprengjum úr Seinni heimstyrjöldinni.
Um borð í Fugro Equator. Í þessu herbergi munu sérfræðingar fylgjast með því hvað er að gerast á hafsbotni um leið og "Togfiskurinn" verður dregin yfir ofan hafsbotninn
Einnig verður notast við sérstakan búnað sem getur greint og "þefað" uppi minnstu dropa af þotueldsneyti í hafinu
og þá verður einnig notast við myndatökubúnað til að skoða flakið, ef það finnst.
Mesta áherslan verður lögð á að finna braksvæðið en búnaðurinn í skipunum á að geta komið auga á hreyfilinn þar
sem sónarbúnaðurinn greinir hluti á hafsbotni sem eru 2 x 2 metrar á stærð.
Steve Duffield, yfirmaður Fugro Survey, mun fá 365 daga til að leita að malasísku vélinni en hann segir að eðli
verkefnisins sé mjög svipað því sem fyrirtækið er að gera hvern einasta dag.
"Það sem er sérstakt við þetta verkefni er hversu stórt þetta svæði er, hversu djúpt hafið er staðsetningin sem virðist
vera langt, langt í burtu frá öllu", segir Duffield.
"Rannsóknarnefndin hefur hannað leitarsvæðið og ef vélin er þarna þá finnum við hana og við gætum bæði fundið
hana á fyrsta degi eða á síðasta deginum".
"Við vitum hvaða tíma við höfum sem er um það bil eitt ár. Við munum leita eftir þeim upplýsingum sem
rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu mun afhenda okkur og það getur breyst hvenær sem er. Flakið gæti verið mun sunnar
en nú er haldið eða mun norðar", segir Duffield.
Systurskipið á leiðinni til Ástralíu
Annað skip fyrirtækisins, Fugro Discovery, eru nú á leið til Ástralíu frá Hollandi og er talið að það verði komið þangað um
miðjan september en Fugro Discovery hefur tafist á leiðinni þar sem skipið tók á sig krók vestur fyrir Afríku til að forðast
Suez-skurðinn vegna hættu á sjónræningjum þrátt fyrir að búið sé að undirbúa skipið vel fyrir sjóránum með gaddavírsgirðingum
sem hafa verið festar við þilfarið.
Staðsetning systurskipsins, Fugro Discovery, kl. 19:20 í kvöld á MarrineTraffic. Skipið er núna skammt undan ströndum Suður-Afríkuþ


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.